Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Staðan á húsnæðismarkaði á bara eftir að versna: „Hægt og bítandi mun eigið fé étast upp“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, segir að staðan á húsnæðismarkaðnum eigi bara eftir að versna; eignarýrnun meðal skuldugra húsnæðiseigenda eigi eftir að aukast mikið og að  ríkisstjórnin sé ekki að gera neitt í málinu; og það aðgerðaleysi, sem og stefna Seðlabankans, séu birtingarmyndir meðvitaðrar ákvörðunar um að færa fjármagn frá skuldurum til fjármagnseigenda.

Þetta og fleira kemur fram í viðtali Frosta Logasonar við Ragnar á hlaðvarpsveitunni Brotkast.

„Stjórnvöld og sveitarfélögin munu ekki hefja uppbyggingu á stórum svæðum, eins og t.d. í Keldnaholti eða Blikastaðalandinu eða inni í Úlfarsárdal fyrr en í fyrsta lagi eftir þrjú, fjögur ár, þannig að þetta verða bara svona þéttingarreitir, sem eru rándýrir.

Verktakarnir og lóðahafar lóða sem hægt er að byggja á munu halda að sér höndum. Þannig að það er bara gott að þínir áheyrendur og áhorfendur geri sér grein fyrir því að það er ekkert að fara að breytast til hins betra, staðan er bara að versna og hún mun versna til mikilla muna áður en hún getur nokkurn tíma batnað.“

- Auglýsing -

Ragnar segir líka mikilvægt að það komi skýrt fram að stjórnvöld séu ekki að fara að gera neitt, þau séu ekki að fara að breyta um stefnu. Ekki heldur Seðlabankinn. Stefnan sé þessi:

„Að þrýsta öllum yfir í verðtryggðu lánin, sem mun byrja að éta upp eigið fé eins og gerðist í eftirmálum hrunsins. Munurinn á því sem gerðist rétt eftir hrun er sá að þá fengum við þetta í einu risastóru skoti. Það sem er að fara að gerast núna er að hægt og bítandi mun eigið fé étast upp og við munum sjá risastóra hópa, sérstaklega ungt og fólk og fólk t.d. sem lenti í hruninu og er kannski nýbúið að rétta sig af með einhverjum hætti, ganga í gegnum sumu hlutina aftur.“

Ragnar segir að allar aðgerðir Seðlabanka og ríkisstjórnarinnar séu til þess fallnar að draga úr framboði á húsnæði en ekki auka það og þær auki á vandann. Það sé meðvituð ákvörðun.

- Auglýsing -

„Ég tel að Seðlabankinn viti nákvæmlega hvað hann er að gera. Hann er að gera það sama og var gert hér í eftirmálum hrunsins, þetta var bara meðvituð og upplýst ákvörðun um að fara í stórfellda eigna- og fjármagnsflutninga frá skuldsettum heimilum og fyrirtækjum yfir til sérhagsmunaafla og fjármálakerfisins og þeirra sem raunverulega stýra landinu hérna bak við tjöldin.“

Þáttinn í heild sinni má nálgast á brotkast.is.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -