Fimmtudagur 28. mars, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Stækkunarglerið: Stærsta augnablik Gísla Sigurðssonar var er hann tók á móti dætrunum á Indlandi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hinn viðkunnanlegi og stundum of hjálpsami Gísli Sigurðsson var undir stækkunargleri Mannlífs í vikunni.
Gísli er með B.A. gráðu í íslensku og almennri bókmenntafræði, meistaragráðu í miðaldafræðum með sérstakri áherslu á íslensku og fornírsku frá University College í Dyflinni og doktorsgráðu í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands, þar sem hann er nú stundakennari í þjóðfræði.
Gísli er rannsóknarprófessor við Árnastofnun, þar sem forn fræði eru hans ær og kýr. Hann hefur komið víða við á starfsferli sínum, en hann hefur meðal annars unnið við þáttagerð í útvarpi, unnið að alþýðlegum útgáfum forntexta, skrifað bækur, séð um ritstjórn og svona mætti lengi telja.
Mannlíf komst að því að Gísli er forfallinn veiðiáhugamaður og leiðist mest að lokast inni á vondum fyrirlestri.

Gísli Sigurðsson

Fjölskylduhagir? Eiginmaður, faðir og afi

Menntun/atvinna? Rannsóknarprófessor á Árnastofnun og stundakennari í þjóðfræði við HÍ

Uppáhalds Sjónvarpsefni?  Landsleikir

Leikari? Jennifer Aniston

Rithöfundur? David Lodge

- Auglýsing -

Bók eða bíó? Bæði

Besti matur? Piparsteik

Kók eða Pepsí? Pilsner

- Auglýsing -

Fallegasti staðurinn? Laxárdalur

Hvað er skemmtilegt? Vera með góðu fólki

Hvað er leiðinlegt? Lokast inni á vondum fyrirlestri

Hvaða flokkur? Frelsis- og jafnréttisflokkurinn

Hvaða skemmtistaður? Veiðistaðir

Kostir? Hjálpsemi

Lestir?  Alltof hjálpsamur

Hver er fyndinn? Ricky Gervais

Hver er leiðinlegur? Man ekki eftir neinum

Trúir þú á drauga? Trúi á draugasögur

Stærsta augnablikið? Þegar við Guðrún kona mín tókum á móti dætrum okkar í Kolgata á Indlandi, Saswati og Pratichi eins og þær hétu þá.

Mestu vonbrigðin?  Að vinna aldrei í lottóinu

Hver er draumurinn? Vinna minna, þéna meira

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári?  Ná mynd af eldgosinu í Geldingadölum á hundagöngunni við Ægissíðu

Ertu búin að ná öllum þínum markmiðum? Nei, það eru margar veiðiár sem ég á eftir að veiða í

Manstu eftir einhverjum brandara? Helst þessum, sem er orðinn óskiljanlegur á tímum farsóttarinnar, af stúdentinum sem var að skrá sig í Háskólann og var spurður hvort hann væri búinn að velja sér grein: „Hva, fæ ég ekki borð og stól eins og hin?“

Vandræðalegasta augnablikið? Verður enn vandræðalegra ef ég fer að rifja það upp

Sorglegasta stundin? Þegar maður þurfti að fara að gera eitthvað annað en leika sér með strákunum í götunni

Mesta gleðin? Samfagna hvers kyns áföngum með fjölskyldu og vinum

Mikilvægast í lífinu? Að rækta andlega og líkamlega heilsu – í góðum félagsskap

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -