Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Stafræn ökuskírteini komin í gagnið

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Búið er að opna fyrir umsóknir um stafrænt ökuskírteini í snjallsíma á Island.is. Stafrænu ökuskírteini eru gefin út til einstaklinga samkvæmt reglugerð um ökuskírteini til þess að sýna og staðfesta ökuréttindi viðkomandi.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra kynntu stafrænu ökuskírteinin rétt í þessu.

Hægt er að sækja um stafrænt ökuskírteini á island.is en þegar nýjungin var kynnt áðan var mikið álag á vefnum.

Sigurður Ingi sagði á kynningunni að það væri skemmtilegt að vera kominn á þennan stað. Hann minnti að stafrænu skírteinin gilda aðeins innanlands.

Áslaug Arna sagði þessa nýju lausn vera þægilega og einfalda og hvatti alla til að sækja um stafrænt ökuskírteini í símann sinn.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -