Dagur einhleypra er á morgun eða „Singles’ Day.“ Þessi frekar ný tilkomna hefð á upphaf sitt að rekja til Kína. Þetta er í 11 sinn dagurinn er haldinn hátíðlegur og er þessi dagur, 11.11 orðinn að stærsta verslunardegi heims og keppast fyrirtæki um athygli neytenda með allskonar tilboðum.
Samkvæmt greiningu Forbes er gert ráð fyrir að verslanir eigi eftir að bjóða enn betri tilboð á morgun en í venjulegu árferði þar sem smásalar eru ákafir í að ná jafnvægi eftir höggið vegna COVID-19. Efnahagur Kína hefur þegar vænkast töluvert og neysla kínverskra neytenda orðin sú sama og fyrir Kófið ef ekki enn meiri.
Þessi mikli verslunardagur er að festa sig í sessi alþjóðlega, segir í greiningunni og þar er Ísland engin undantekning. Þá má líka ætla að jákvæðar fréttir af þróun bóluefnis Pfizer og BioNTech gegn COVID-19 sem spurðust út í gær geti ýtt undir klaupgleði fólks. En spyrjum að leikslokum.
Neytendavaktin tók saman nokkra verslunar „viðburði“ sem hefjast á miðnætti en hvetur neytendur auðvitað til að stíga varlega til jarðar og hugsa sig vel um áður en veskið er tekið upp. „Þarf ég þetta nauðsynlega,“ er mikilvæg spurning til að spyrja sig en það er auðvitað alveg rakið að kaupa það sem vantar á góðum afslætti – nú eða jólagjafirnar ef ekki á að föndra þær!
Singles day adidas.is, reebok.is og GÁP
Fjölmargar aðrar verslanir bjóða upp dúndur tilboð frá miðnætti í kvöld – svo nú er ekki annað að gera en að hella uppá!