Fimmtudagur 18. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Strætó keyrir nú um með brjóstajesúmyndina

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Strætisvagn ekur nú um götur höfuðborgarinnar með hina umdeildu brjóstajesúmynd eftir endilöngum vagninum. Um er að ræða auglýsingu sem Þjóðkirkjan greiðir Strætó fyrir. Myndin hefur bæði fengið lof en jafnframt talsverða gagnrýni síðustu daga.

Séra Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, er fjúkandi reiður vegna meintrar afskræmingar Agnesar Sigurðardóttur biskups á Jesú Kristi sem fékk kvenmannsbrjóst í auglýsingu Þjóðkirkjunnar. Auglýsingunni, sem beint er að börnum, var að sögn ætlað að auka víðsýni fólks og undirstrika umburðarlyndi kirkjunnar varðandi kynhneigð fólks og kynvitund.

Séra Geir segir framkomu biskups sem skemmdarverk gagnvart stofnuninni. Annar sem tekur undir gagnrýni á Agnesi er Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, sem spyr hvort María góðsmóðir megi vænta þess að fá skegg í meðferð kirkjunnar.

Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, staðfesti í samtali við DV að strætisvagninn væri kominn á götur borgarinnar. Guðmundur sagði þar að Þjóðkirkjan hafi keypt þessa auglýsingu og að vagninn hafi farið í akstur í gær.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -