Fimmtudagur 18. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

Svara stjóra Sælukots og segja borgina ábyrga: „Innan leikskólans er lítil sem engin fagmenntun“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Á­byrgðin á Sælu­koti liggur hjá Reykja­víkur­borg“ skrifa þær stöllur Margrét Eymundardóttir, kennari og fyrrverandi leikskólastjóri, María Lea Ævarsdóttir, kvikmyndagerðarkona og móðir, Eva Drífudóttir, innanhússarkitekt og fyrrverandi starfsmaður, og svara þar fyrir sig eftir að leikskólastjóri Sælukots, Elín Halldórsdóttir, ritaði grein um málefni leikskólans og fór síðan í viðtal á útvarpsstöðinni Bylgjunni.

Elín Halldórsdóttir .

Gefum þeim orðið:

„Í viðtali á Bylgjunni við Elínu Halldórsdóttur leikskólastjóra á Sælukoti, þann 9. september síðastliðinn, kemur fram að rekstrarstjóri Sælukots sé nunna í Ananda Marga samtökunum sem vinnur mikla sjálfboðavinnu og óeigingjarnt starf. Hún hafi með áralöngu striti náð að kaupa raðhús í Skerjafirði sem sé hluti af fjárfestingu Ananda Marga samtakanna sem ætli sér að stækka leikskólann.“

Óhætt er að segja að þær telji svör Elínar ekki vera krónunnar virði og segja:

„Þetta er reyndar hlægilega einfalt svar en í framhaldi af því vakna hjá okkur spurningar um arðinn. Hver þiggur arð upp á 41,8 mkr? Og, hverjir standa á bak við leikskólann? Hverjir eru í Sælutröð og hafa þeir einhver tengsl við Reykjavíkurborg? Sömuleiðis kemur fram í viðtalinu að lítill reglurammi og skriffinnska sé í kringum leikskólastarfið. Það byggi á kærleika og nýhúmanisma sem sé einfaldlega þannig að fólk sé gott og ástúðlegt, sérstaklega við börn.

Þetta er allt gott og blessað, og enginn ætti að fetta fingur út í svo fallegt fyrirkomulag; börnin syngja um Baba og vinna við leikskólann hefur gegnum tíðina oft verið byggð á sjálfboðastarfi. Þetta vissum við sem unnum allar á ólíkum tíma við leikskólann.“

- Auglýsing -

Þær færa einnig í tal að „við þekkjum líka allar hina hliðina á góðvild og ástúð rekstrarstjórans. Lýsingar á henni koma fram í bréfi sem við sendum á Reykjavíkurborg og fleiri í nóvember í fyrra og lesa má hér. Við vitum það fyrir víst að um árabil hafa leikskólastjórar einungis starfað í lítilli prósentu í Sælukoti. Vinna þeirra hefur einkum falist í því að rita skýrslur og uppfylla þær skildur sem Reykjavíkurborg þó gerir um leikskólastarfið.“

Einnig benda þær á að „starfsfólk leikskólans hefur ekki þekkt leikskólastjórana í sjón enda stjórnar rekstrarstjórinn, nunnan, með mýkt eða harðneskju, eftir því hvernig liggur á henni.

Á Sælukoti er ekki unnið eftir Aðalnámskrá og innan leikskólans er lítil sem engin fagmenntun. En eins áður hefur komið fram hjá okkur þá sækja leikskólakennarar sjaldan um starf á leikskólanum og ef þeir villast þangað inn staldra þeir stutt við.

- Auglýsing -

Sérkennsla er sjaldnast til staðar og lítið er sóst eftir þátttöku utanaðkomandi aðila. Þetta allt veit starfsfólk, embættismenn og stjórnendur hjá Reykjavíkurborg. Þroskaþjálfar, sálfræðingar, Félag stjórnenda í leikskólum o.s.frv. Og þetta vita líka kjörnir borgarfulltrúarar sem fara með vald og eiga að sýna ábyrgð.“

Og skrifa lika að það sé „auðvelt að stinga höfðinu í sandinn og vona að hlutirnir reddist, sérstaklega þegar leikskólapláss vantar í borginni. Elínu sendum við ást og frið til baka og óskum henni alls góðs. Hún sem hefur unnið á leikskólanum í tvo mánuði, ber ekki ábyrgð á því ástandi sem þar hefur skapast. Við ætlum hins vegar ekki að standa í frekari bréfaskiftum við hana sem getur ekki svarað fyrir a.m.k. sex ára vanrækslu á Sælukoti.“

Skúli Helgason.

Að mati þremenninganna liggur „ábyrgðin hjá Reykjavíkurborg. Hún liggur hjá Skúla Helgasyni, fyrrverandi yfirmanns skóla- og frístundasviðs, Helga Grímssyni, sviðstjóra skóla-og frístundasviðs, Ólafi Brynjari Bjarkasyni, skrifstofustjóra fagskrifstofu leikskólamála, Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur, núverandi formanni skóla- og frístundasviðs og öðrum kjörnum fulltrúum.

Við biðjum og vonum að ekki þurfi stórslys til að loka þessum leikskóla eða umbreyta starfsemi hans.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -