Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Svekkelsi í Súðavík: „Greinin frá Þorsteini og svörin ykkar hafa vakið mikla reiði í bænum okkar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Á vefnum góða, bb.is, er að finna grein sem ber yfirskriftina:

Viljum fá Þorstein lækni.

Höfundur greinarinnar er Bjarndís málari.

„Hugleiðingar vegna greinar frá Þorsteini Jóhannessyni fv yfirlækni á Ísafirði í tæp 30 ár í Bæjarins Besta í dag 28. okt. þar sem Þorsteinn býðst til þess að koma og vera heilsugæslulæknir í Súðavík fyrir okkur heimafólk og nærsveita í 2 vikur í hverjum mánuði .

Ég bara spyr, Gylfi forstjóri og Súsanna frkvstj lækninga..hvað er í gangi hjá Heilbrigðisstofnun Vestjarða ???

Við Ísfirðingar og nágrannar og hefðum himin höndum tekið að fá þetta boð frá Þorsteini, ekki aðeins að það taki næstum þvi tvo mánuði að fá tíma hjá lækni hérna , þá er það þannig við heimafólk höfum saknað hans og það eru margir sem hafa fylgt honum eftir sem lækni suður á land. Hann var með opna göngudeild 2x í viku í áratugi og þurfti ekki að panta tíma. Fólk gat komið á biðstofuna og þetta er m.a. það sem hefur verið tekið af og fólk saknar.

- Auglýsing -

Nú vinn ég sem málarameistari innan um bæjarbúa og með fólki á öllum fjörðum og þekki vel til ásamt flestum iðnaðarmönnum. Og það er sama hvar maður ber niður langflestum finnst þessi þjónusta hafa dalað og við vitum að það er víða læknaskortur og veit ég og fleiri til þess að fólk héðan hefur farið suður til að komast á Heilsugæslur þar og komið heim samdægur.

En mér finnst það vera Heilbrigðisstofnun Vestjarða til mikilla vansa að hafna þessu tilboði Þorsteins og það er ykkur engan veginn til sóma og þó að ykkur hjá stofnunni henti ekki að ráða Þorstein , þá viljum við heimafólk það og þið hafið alveg heyrt það og vitið það.

Kannski ættuð þið bara að fara að skanna ykkar innri stefnu. En þetta er EKKI FALLEGT.

- Auglýsing -

Ég veit að ég tala fyrir fjölda heimamanna með þvi að setja þetta á blað, annars hefði ég ekki gert það, þvi greinin frá Þorsteini og svörin ykkar hafa vakið mikla reiði í bænum okkar.

Vona svo sannarlega að þið endurskoðið vilja OKKAR, ekki ykkar.

Fyrir hönd heimafólks Bjarndís málari.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -