Ráð Unnar Eggertsdóttur, leikkonu í Los Angeles í Bandaríkjunum, um hvað skal gera ef einhver nákominn þér hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi hafa slegið í gegn á samfélagsmiðlum.
Í vikunni hefur fjöldi manns skilað skömminni og opnað sig um kynferðislegt ofbeldi sem það hefur orðið fyrir. Ljóst er að ástæða þess er sú mikla samúðarbylgja sem reis upp með Sölva Tryggvasyni þegar hann sagði logið upp á sig ofbeldi. Mannlíf reið á vaðið og opnaði þá umræðu sem komið hefur af stað annarri Metoo-bylgju. Þegar í ljós kom að tvær konur hefðu kært Sölva til lögreglu þagnaði sá hópur en nýr hópur lét í sér heyra: þolendur.
Ráðin eru fimm en Unnur leggur áherslu á að hún sé ekki sérstaklega menntuð í þessum málefnum. Ráð hennar er þó ekki verri fyrir það, í það minnsta að mati margra.
Hér fyrir neðan má sjá ráð hennar en hún birtir þau á Instagram.