Orðrómur
Einn umdeildasti embættismaður landsins er Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu. Hann er trölltryggur sjálfstæðismaður sem stóð vakt sína af kostgæfni. Hann er nú á förum og hyggst snúa sér að skógrækt, samkvæmt Morgunblaðinu. Þórólfur var lengi sýslumaður á Patreksfirði þar sem hann var meðal annars frægur fyrir að þvælast með kjörkassa um byggðarlagið. Hann endaði eftir nokkrar krókaleiðir í Reykjavík.
Eitt umdeildasta embættisverk hans var að setja lögbann á fréttir Stundarinnar um Engeyinga og fjármálabrall þeirra. Lögbannið var sett í aðdraganda kosninga en kom samherjum Þórólfs ekki til góða vegna almennrar fordæmingar á framgöngu hans. Gárungar tala um að sýslumaðurinn iðrist þess nú að hafa hlúð að illgresi og vilji hlúa að skóginum …