Mánudagur 22. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

„Það er lítill Bond á leiðinni“ – Siggi Bond hefur snúið við blaðinu – Á nú von á sínu fyrsta barni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sigurður Gísli Snorrason knattspyrnumaður og einn af stjórnendum hlaðvarpsins The Mike Show, sem þekktur er undir nafninu Siggi Bond, á nú von á sínu fyrsta barni með sambýliskonu sinni, Eyrúnu Jónsdóttur hjúkrunarfræðingi.

Mikil ánægja og eftirvænting ríkir hjá  parinu og fjölskyldum þess.

Siggi Bond hefur ekki alltaf átt góða tíma; hann var í bullandi neyslu og var til að mynda handtekinn í Hollandi fyrir rúmu ári síðan eftir að hafa verið neyddur af glæpagengi þar  í landi til að ræna apótek vopnaður skammbyssu.

Siggi Bond segist hafa verið ánægður þegar glæpagengið hollenska settu hann í það verk því þá vissi hann að hann myndi ná að losna úr greipum glæpagengisins. Málið endar svo á því að Siggi fær byssu og á að ræna apótek.

Í kjölfarið fór hann í apótekið og lagði byssuna á borðið og bað afgreiðslufólkið að hringja strax í lögregluna. Hann sat í fangaklefa í þrjá daga í Amsterdam en var svo sleppt.
Siggi segist aldrei hafa verið eins hræddur á ævinni um líf sitt og hélt að hann myndi deyja þarna. Hann beittur líkamlegu ofbeldi af hollenska glæpagenginu á meðan hann var fangi þeirra. Þeir börðu hann sundur og saman og brutu meðal annars tvö rifbein í honum.

Eftir heimkomuna frá Hollandi fór Siggi beint í meðferð og kom úr meðferðinni breyttur og betri maður. Hann kynntist fljótlega ástinni sinni, Eyrúnu, og nú eiga þau von á sínu fyrsta barni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -