Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þarf að tryggja að nýtt bóluefni valdi ekki skaða

Þórólfur Guðnason
Þórólfur Guðnason

Þórólfur Guðnason sóttvarnar­læknir var spurður út í þróun bóluefnis við kóróna­veirunni sem veldur COVID-19 í morgun­þætti Rásar 1 og 2 í morgun. Aðspurður af hverju taki svona langan tíma að þróa nýtt bóluefni sagði hann að það þyrfti að tryggja að nýtt bóluefni valdi ekki skaða áður en það eru tekið í notkun.

Hann benti á að það sé flókið að búa til nýtt lyf og tryggja að það valdi ekki skaðlegum auka­verkunum. Hann tók fram að vísinda­menn þurfi að búa til bóluefni sem í fyrsta lagi virkar gegn veirunni og í öðru lagi valdi ekki öðrum sjúkdómum.

Hann sagði viða­miklar rann­sóknir þurfa til að ganga úr skugga um þessi atriði þegar nýtt bóluefni er prófað. Það sama á við um lyf við sjúk­dómnum sjálfum. Hann sagði að vænlegast væri að gefa einum hóp lyfið og öðrum ekki og gera samanburð til að sjá virknina.

„Það þarf almennilegar rann­sóknir,“ sagði Þórólfur. Hann bætti við að hann telji að nú séu læknar víða um heim að gera tilraunir með lyfjagjöf en án rannsókna sé erfitt að sjá hvort lyfin virki í raun og veru.

Um veiruna sjálfa sagði hann að það hefði komið honum á óvart hversu smitandi hún er og hversu hratt hún dreifir sér. „Líka hversu margir veikjast illa, það hefði samt ekki þurft að koma á óvart ef litið er til Kína. Fréttirnar þaðan voru skelfilegar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið