Þriðjudagur 19. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Þessar breytingar tóku gildi á miðnætti – Nú má fara í sund og ræktina

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ný reglugerð heilbrigðisráðuneytisins um takmarkanir á starfsemi innanlands tók gildi á miðnætti. Líkamsræktarstöðvar og sundlaugar mega nú opna með takmörkunum, íþróttastarf fullorðinna og barna er heimilað á nýjan leik. Bæði leikhús og barir geta aftur tekið á móti gestum.

Almennar fjöldatakmarkanir fara úr tíu í tuttugu manns. Þá geta skíðasvæði og sviðslistir aftur hafið starfsemi þar sem fimmtíu mega vera saman á sviði og hundrað í hólfum úti í sal.

Í skólum fer fjarlægðarreglan úr tveimur metrum í einn. Leik- og grunnskólabörnum verður heimilt að stunda skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf á nýjan leik.

Nýja reglugerð Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra gildir í þrjár vikur eða til og með 5. maí.

Samkvæmt nýju reglugerðinni er þetta nú heimilt: 

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
  • Sund- og baðstöðum og heilsu- og líkamsræktarstöðvum heimilt að opna fyrir 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, auk annarra skilyrða.
  • Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna með og án snertinga í öllum íþróttum heimilar með allt að 100 áhorfendum sem skulu skráðir í sæti. Hámarksfjöldi fullorðinna verður 50 manns en fjöldi barna fer eftir sömu takmörkunum og í skólastarfi.
  • Skíðasvæðum heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda móttökugetu hvers svæðis.
  • Sviðslistir, þar með talið kórastarf, heimilar með allt að 50 manns á sviði og 100 sitjandi gestum í hverju hólfi, auk annarra skilyrða.
  • Hámarksfjöldi við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga áfram 30 manns en fjölgar í 100 manns við útfarir.
  • Öllum verslunum heimilt að taka á móti 5 viðskiptavinum á hverja 10 m², þó að hámarki 100 manns, auk 20 starfsmanna í sama rými og viðskiptavinir.
  • Skemmtistöðum, krám, spilasölum og spilakössum heimilt að hafa opið með sömu skilyrðum og veitingastöðum þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar.
  • Verklegt ökunám og flugnám með kennara heimilt.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -