Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

„Þetta fyrirkomulag getur ógnað þjóðaröryggi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar veltir því fyrir sér hvers vegna notkun greiðslukorta og greiðslumiðlunar hér á landi sé margfalt dýrari en í nágrannaríkj­unum, í grein er hún hefur ritað:

„Það er vegna þess að við erum háð erlendum aðilum,“ skrifar hún og heldur áfram:

„Heimildargjöf og uppgjör innlendra debetkorta fer fram erlendis. Íslenskir neytendur eru ekki bara að greiða til íslenskra banka heldur borga þeir einnig til Visa og Mastercard í útlöndum. Hagnaður bankanna af þessu fyrirkomulagi hleypur á milljörðum en er okkur neytendum mjög kostnaðarsamt því allir milliliðir vilja sitt á öllum stöðum. Við borgum og getum ekki annað.“

Segir einnig að „við bætist að þetta fyrirkomulag getur ógnað þjóðaröryggi líkt og Már Guðmundsson, þá seðlabankastjóri, benti á árið 2019 með bréfi til Þjóðaröryggisráðs. Fjármálastöðugleikanefnd áréttaði í yfirlýsingu sinni 28. september síðastliðinn mikilvægi þess að auka öryggi í innlendri greiðslumiðlun til að tryggja rekstrarsamfellu og vísaði þar meðal annars til vaxandi netógnar.“

Oddný telur að „við þurfum sjálfstæðar og óháðar greiðslulausnir. Lausnir sem eru bæði ódýrari en þær sem við búum við og öruggari. Krafan ætti að vera sú að ávallt séu til staðar virkar lausnir sem lúta í einu og öllu íslenskri löggjöf um eignarhald, umráða- og notkunarrétt og eru algjörlega óháðar inngripum erlendra aðila sem gætu ógnað innlendri greiðslumiðlun og fjármálastöðugleika. Það þarf að auka samfélagslegan ábata og tryggja þjóðaröryggi.“

Bætir við:

- Auglýsing -

„Við í Samfylkingunni vildum ekki selja hluti ríkisins í bönkunum fyrr en framtíðarsýn hefði verið rædd meðal almennings um það hvernig bankakerfi þjónaði hagsmunum okkar best. Svara þyrfti þeirri spurningu hvernig bankakerfi tryggi góða og trausta þjónustu við fólk og fyrirtæki með fjölbreytni, samkeppni, öflugu eftirliti, neytendavernd og öruggri, ódýrri, innlendri greiðslumiðlun.“

Hún nefnir að endingu að „ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir vildu selja sem mest strax og hirtu ekki um að gera þyrfti breytingar á kerfinu til að tryggja hagsmuni almennings. Stjórnvöld og Seðlabanki Íslands þurfa að girða sig í brók og tryggja óháða sjálfstæða fjármálainnviði, óháðar og ódýrar innlendar greiðslulausnir.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -