Föstudagur 29. mars, 2024
2.8 C
Reykjavik

Þingmenn kalla eftir vandaðri vinnubrögðum fjölmiðla í kjölfar andláts Caroline Flack

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Breskir stjórnmálamenn hafa fordæmt vinnubrögð fjölmiðla eftir að sjónvarpskonan Caroline Flack, sem var þekktust sem stjórnandi þáttanna Love Island, tók sitt eigið líf á laugardaginn.

Um helgina var greint frá því að Flack hefði fundist látin í íbúð sinni í London. Flack var í fyrra ákærð fyrir líkamsárás þar sem hún var sögð hafa beitt kærasta sinn ofbeldi og m.a. lamið hann með lampa þar sem hann lá sofandi. Flack beið réttarhalda en kærasti hennar, Lewis Burton, hafnaði því að hún hafi beitt hann ofbeldi.

Breskir fjölmiðlar fjölluðu mikið um málið og þótti umfjöllun þeirra oft óvægin og ósanngjörn.

Nokkrir stjórnmálamenn hafa nú kallað eftir betri fjölmiðlaumfjöllun og hvetja fólk til að vanda sig þegar kemur að umræðu á samfélagsmiðlum. The Guardian fjallar um málið.

Segir fjölmiðla bera ábyrgð

Keir Starmer, þingmaður Verka­manna­flokks­ins, gagnrýnir umfjöllun fjölmiðla og skaðlega umræðu sem skapaðist á samfélagsmiðlum um mál Flack. Hann segir andlát Flack hafa komið fólki í opna skjöldu en bendir á að fjölmiðlar beri ákveðna ábyrgð. Hann kallar núna eftir vandaðri fjölmiðlaumfjöllun.

- Auglýsing -

Þingkonan Lisa Nandy segir vonlaust að engin lög né reglur gildi á samfélagsmiðlum. Nandy líkir samfélagsmiðlum við villta vestrið þar sem allt er látið viðgangast. Nandy gefur í skyn að umfjöllun á samfélagsmiðlum hafi orðið Flack ofviða.

Grant Shapps sam­gönguráðherra Bretlands, tekur undir. Sömuleiðis þingkonan Daisy Cooper, hún segir mál Flack sýna og sanna hversu mikil áhrif fjölmiðlaumfjöllun gefur haft á fólk.

Matt Hancock, heil­brigðisráðherra Bret­lands, sagði á Twitter að hann væri miður sín yfir andláti Flack. Hann sagði að samfélagið í heild sinni þyrfti að leggja meiri áherslu á að hlúa að því fólki sem á um sárt að binda.

- Auglýsing -

Kate Osamor skrifaði einnig færslu á Twitter um málið. Hún sagði einelti fjölmiðla gagnvart Flack hafa verið miskunnarlaust.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -