Formaður viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fór í golf í gær þvert gegn tilmælum sóttvarnaryfirvalda. Það gerði hún á golfvelli utan höfuðborgarsvæðisins, nánar tiltekið í Hveragerði, sem golfiðkendur voru sérstaklega beðnir um að gera ekki.
Í samtali við Morgunblaðið baðst hún afsökunar á hegðun sinni. Hún skýrði atferlið meðal annars með því að hún var sjálf stödd í sveitinni en ekki heimili sínu í Hafnarfirði. „Þetta er náttúrlega algerlega óafsakanlegt í ljósi tilmæla. Ég ætla ekki neitt að fela mig á bak við það þó að ég sé hér þegar ég er ekki í Hafnarfirði. Ég fór í golf og er ekki meðlimur í klúbbnum, þannig að þá er það ekki heimilt, eins og maður segir, samkvæmt tilmælum, ef maður á að fara nákvæmlega eftir þeim,“ sagði Þorgerður Katrín.
Í vikunni sem leið sendi Golfsamband Íslands frá sér tilmæli um að kylfingar á höfuðborgarsvæðinu leiti ekki til golfvalla utan þess eftir að golfvöllum var þar lokað í ljósi hertra sóttvarnarreglna í höfuðborginni. Þorgerður situr einmitt í stjórn sambandsins. Fyrir helgi hafði svo Golfklúbbur Hveragerðis tilkynnt lokun golfvallarins fyrir öðrum en félagsmönnum. Þar er formaður Viðreisnar ekki félagsmaður en það lét Þorgerður ekki stoppa sig.
„Það var ekki verið að banna fólki að fara í golf ef þú ert þegar úti á landi. Síðan má alveg segja hvort þetta sé rétt eða rangt. Það hefði verið heppilegra að fara ekki en tilmælin eru þau að þú farir ekki sérstaklega út á land til að spila golf. Ég fór ekki sérstaklega úr Hafnarfirðinum til að spila golf í Hveragerði. Ég var í Ölfusinu,“ sagði Þorgerður.