Miðvikudagur 24. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Þórhildur Sunna segir Jón Gunnarsson vera lygara: „Hann lýgur að þinginu, hann lýgur að almenningi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þingflokksformaður Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, segir að Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra sé lygari í grein er hún ritar.

„Dómsmálaráðherra Íslands, maðurinn sem ber ábyrgð á málefnum lögreglu, dómstóla og sýslumanna og réttvísinni á Íslandi svona almennt og yfirleitt, hefur endurtekið verið staðinn að lygum.

Hann lýgur að þinginu. Hann lýgur að fjölmiðlum. Hann lýgur að almenningi.“

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.

Þórhildur Sunna segir að „nú síðast var ráðherrann staðinn að verki við það að ljúga því að okkur öllum að slysum á lögreglumönnum hafi farið mjög fjölgandi síðastliðin ár. Þessu laug ráðherrann til þess að réttlæta ákvörðun sína um að vopnvæða lögregluna með rafbyssum. Án umræðu í samfélaginu. Án umræðu í ríkisstjórn. Án umræðu á Alþingi.“

Bætir þessu við:

„Dómsmálaráðherra Íslands, Jón Gunnarsson, ráðherra Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur líka logið um fólk á flótta. Hann gerir það til þess að ala á ótta. Hann gerir það til þess að græða á fordómum gegn flóttafólki, sem er einn viðkvæmasti hópur fólks sem finna má á jörðinni.“

- Auglýsing -

Segir að endingu:

„Það er í sjálfu sér ekki ólöglegt að ljúga en þegar maður með æðsta vald yfir réttarvörslukerfinu á Íslandi er endurtekið staðinn að lygum er ástæða til þess að staldra við og spyrja sig; hvers vegna hefur það ekki vakið meiri viðbrögð en raun ber vitni?“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -