Þriðjudagur 23. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Þórunn hverfur af þingi: „Má aldrei missa vonina“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og oddviti í Norðausturkjördæmi, hefur ákveðið að hætta á Alþingi vegna veikinda sinna en hún hefur glímt við krabbamein.

„Meinið hef­ur tekið sig upp að nýju en brýnt er að vera bjart­sýn. Maður verður alltaf að horfa fram á við. Og maður má aldrei missa von­ina. Aldrei. Fram­boð til Alþing­is verður hins veg­ar að bíða betri tíma. Ég mun því ekki gefa kost á mér til að leiða lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norðaust­ur­kjör­dæmi í kom­andi alþing­is­kosn­ing­um,“ skrif­ar Þór­unn á Facebook.

Þórunn er í helgarviðtali Mannlífs þessa vikuna. Þar lýsti hún baráttu sinni og óttaleysi:

„Ég held að það sé ekkert vont fyrir þann sem deyr. Það er verra fyrir hina. Ég hef þá frekar áhyggjur af fólkinu mínu; þeim sem eru í kringum mig. En ekki af sjálfri mér. Við vitum hvað er að lifa en við vitum ekkert hvað hitt er. Það eina sem við vitum er hvernig er að vera á þessari jörð. Hitt vitum við bara ekkert um. Það getur vel verið að einhver viti það en ég veit það ekki.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -