Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Þórunn hafði tugi milljóna af öldruðum: „Ég þurfti að greiða skuldir og borga fyrir viðhald“

Þórunn hafði tugi milljóna af öldruðum: „Ég þurfti að greiða skuldir og borga fyrir viðhald“

Í októ­ber­mán­uði árið 2001 var Þórunn Sig­ur­veig Aðal­steins­dótt­ir, átta barna móðir, amma og langamma á sjö­tugs­aldri, dæmd í tveggja ára fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir fjár­svik. Þórunn hafði á átta ára tíma­bili, frá árinu 1992, blekkt sjö aldr­aða karl­menn til að afhenda sér ríf­lega 56 millj­ónir króna, oft­ast gegn lof­orði um end­ur­greiðslu. Ljóst var að Þórunn var á engum tíma­punkti borg­un­ar­maður fyrir fénu. Karl­menn­irnir reynd­ust ekki hafa vitað hvor af öðrum.

Sólarlandaferðir og falskar tennur

Þórunn hafði áður kom­ist í kast við lögin og verið dæmd í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir hlut­deild í skjala­falsi árið 1987. Hún fékk aftur dóm fjórum árum seinna og þá fyrir fjár­svik. Það mál var að lang­mestu leyti svipað því sem síðar varð. Þórunn var dæmd fyrir að nýta sér bág­indi og ein­stæð­ings­skap sjö­tugs manns til að hafa af honum fé og skrifa upp á fjár­hags­skuld­bind­ingar. Féð nýtti hún í meðal ann­ars í sól­ar­lands­ferð, falskar tennur og menntun sonar síns.

Svikin sem Þórunn var dæmd fyrir 2001 virð­ast hafa verið vel und­ir­búin. Hún hafði sam­band við Bænda­sam­tök Íslands og óskaði eftir upp­lýs­ingum um roskna ein­stæða bændur undir því yfir­skini að hafa hug á að ráða sig sem ráðs­konu. Hún hafði síðan sam­band við þá í gegnum síma og virð­ist hafa höfðað til ein­maka­leika þeirra og félags­legrar ein­angr­unar. Þórunn sagði mönn­unum dap­ur­legar sögur af sér og sínum sem urðu til þess að vekja samúð hjá mönn­unum sem vildu hjálpa fátæku kon­unni sem hafði þurft að þola svo mikið. Hún sagði frá veik­indum barna sinna, dýrum aðgerðum á erlendum sjúkra­húsum og jafn­vel upp­dikt­uðum útfar­ar­kostn­aði sömu barna.

Tapað fé

Samtals varð Þórunn sér úti um 56 millj­ónir króna með þessum hætti. Langstærstur hluti var í formi reiðu­fés. Fórn­ar­lömbin voru treg til að bera vitni og sagð­ist DV í frétta­skýr­ingu 2001 hafa öruggar heim­ildir fyrir því að fórn­ar­lömb Þórunnar hefðu verið mun fleiri en ákært var fyrir. Svo virð­ist sem skömm hafi orðið til þess að menn kærðu sig ekki um að við­ur­kenna að hafa orðið fyrir barð­inu á svika­myllu Þórunnar auk þess sem von­lítið þótti að sækja hið glat­aða fé.

Fórn­ar­lömb sín fann Þórunn all­staðar á land­inu og tók DV saman nokkur þeirra á sínum tíma:

  • Sjötíu og fjög­urra gam­all ein­búi á Vopna­firði lét Þórunni í té 14,9 millj­ónir króna á átta árum, þar af sex millj­ónir 1999.
  • Sextíu og tveggja ára gam­all bóndi í Borg­ar­byggð lán­aði Þórunni 150 þús­und krónur árið 2000.
  • Sjötíu og sjö ára gam­all bóndi í Austur- Húna­vatns­sýslu lét Þórunni hafa 8,3 millj­ónir króna á fjórum árum, þar af 3,4 millj­ónir árið 1999.
  • Áttatíu og þriggja ára gam­all ein­búi á Húsavík lét Þórunni í té 1,1 milljón í tveimur greiðslum árin 1996 og 1998.
  • Sextíu og sjö ára gam­all ein­búi á Skaga­strönd lét af hendi 3,2 millj­ónir til Þórunnar á átta árum, þar af 1,2 millj­ónir á árinu 2000.
  • Sjötutíu og þriggja ára gam­all ein­stæð­ingur í Vesturbæ Reykja­víkur lét Þórunni í té 23,6 millj­ónir á fjög­urra ára tíma­bil­inu 1996 til 2000. Hann ljáði henni svo og börnum hennar einnig veð í fast­eign sinni til trygg­ingar lánum.

Þórunn var einnig ákærð fyrir að hafa haft eina og hálfa milljón króna af sjö­tíu og sex ára gömlum Reyk­vík­ing og að hafa ásamt syni sínum fengið tæp­lega níræðan Sel­tyrn­ing til að veð­setja íbú­ar­her­bergi sitt til trygg­ingar skulda­bréfa­láni upp á 1,250 þús­und krónur.

Höfðu ein­hverjir haft á orði að Þórunn hefði merki­lega mikið fé handa á milli þegar til þess væri litið að mán­að­ar­tekjur hennar voru 77 þús­und krónur á þessum tíma.

„Þurfti að greiða skuldir“

Mörg fórn­ar­lambanna hitti Þórunn aldrei og fór sam­skiptin alfarið fram í gegnum síma. Hún ku þó hafa heim­sótt fórn­ar­lambið á Húsavík og fór reyndar margoft til Vest­ur­bæ­ings­ins sem hún hafði hvað mest af. Eitt af þeim vitnum sem fram komu sögðu að þar hefði verið um að ræða ævisparnað ein­stak­lega aðsjáls ein­búa sem hefði nurlað hverri krónu saman. Aldrei feng­ust skýr­ingar á með hvaða fag­ur­gala Þórunn hafði af mann­inum féð né af hverju hann féll síðar frá bóta­kröfu.

Þórunn lagði sig í líma við að forð­ast fjöl­miðla og fór fram á að rétt­ar­höldin væru lokuð en ekki var orðið við því. Sonur Þórunnar, sem einnig var kærður í mál­inu, réðst síðar ásamt systur sinni að ljós­mynd­ara DV sem hugð­ist ná mynd af Þórunni í hús­næði Hérð­asdóms.

Kærunni á hendi syni Þórunnar var síðar vísað frá dómi.

Aðspurð um ástæður fjársvikanna sagði Þórunn fyrir dómi: „Ég þurfti að greiða skuldir og borga fyrir við­hald á hús­næði“.

Þórunn lést hálf­ní­ræð árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára