Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna aðgerðar lögreglu gegn skipulagðri glæpastarfsemi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þrír menn hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri brotastarfsemi. Gæsluvarðhaldið stendur til 18. júlí.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald, en einum þeirra hefur nú verið sleppt úr haldi. Mennirnir voru handteknir í viðamiklum aðgerðum lögreglunnar fyrr í mánuðinum.

Rannsóknin snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti. Alls voru sjö handteknir í aðgerðunum og ráðist var í níu húsleitir. Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í baráttu lögreglunnar gegn skipulagðri brotastarfsemi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -