Þrír karlar á þrítugsaldri voru í kvöld í héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í átta daga gæsluvarðhald, eða til 22. janúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynning barst um árásina klukkan 00:44.
Þrír karlmenn vor handteknir grunaðir um líkamsárás og hafa fíkniefni undir höndum. Voru mönnunum þremur stungið í steininn á Hverfisgötu. Lögregla flutti þann sem varðist hinum þremur á Bráðadeild til að gera að sárum hans. Hann fékk síðan einnig að dúsa í fangaklefa vegan máls sem lögregla hefur til rannsóknar. Þá segir í tilkynningu lögreglu að áverkar hafi verið á höndum mannsins og víðar á líkama hans.
Lögregla rannsakar nú mál þremeningana sem létu hnefana tala í miðborginni síðastliðna nótt en engum sögum fer af hinum slasaða. Þá kemur fram að rannsókn málsins miðist vel áfram.