Föstudagur 19. apríl, 2024
1.8 C
Reykjavik

Tjónið vegna Sigríðar nemur árslaunum 28 manns

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, á ekki sjö dagana sæla. Ólögmæt skipun hennar á dómurum við Landsrétt er staðfest á öllum dómstigum og ríkið þarf að greiða himinháar bætur. Reiknaður kostnaður er þegar kominn í 141 milljón króna samkvæmt staðfestingu Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra við spurningu Helgu Völu Helgadóttur alþingismanns Samfylkingar. Sigríður var leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík norður í síðustu kosningum

Greiðslur til fjög­urra settra dóm­ara í stað þeirra, sem þurftu að víkja frá störf­um vegna vafa um lög­mæti skip­un­ar þeirra nem­ur yfir helmingi þeirrar upphæðar eða 73 millj­ón­um króna. Tjónið af völdum ráðherrans samsvarar árslaunum 28 einstaklinga, en að vísu láglaunafólks.

Sér­fræðiráðgjöf til dóms­málaráðuneyt­is­ins vegna málareksturs við Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu kostaði 36 millj­ón­ir.

Ólíklegt er að Sigríður fái risið undir þessum ósköpum og nái að halda leiðtogahlutverkinu. Allt eins líklegt að henni verði hafnað í öruggt þingsæti. Henni er líst sem heitustu kartöflunni í Sjálfstæðisflokksins. En á móti kemur að hún er pólitískt hörkutól  og gæti þess vegna staðið af sér storminn og lágmarkað tjónið ef gæfan verður henni hliðholl. Svo er líka sá möguleiki að hún hætti í stjórnmálum líkt og forveri hennar, Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem Lekamálið varð að falli.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -