Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Tveggja milljarða króna hagnaður af Bláa lóninu: „Áætlanir gera ráð fyrir áframhaldandi bata“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Bláa lónið hagnaðist um tæpa tvo milljarða króna árið 2022; mikill viðsnúningur eftir taprekstur árin 2020-2021, en þetta kemur fram á vb.is.

Bláa lónið hagnaðist um 13,5 milljónir evra árið 2022, eða sem nemur 2 milljörðum króna, samkvæmt ársreikningi sem er nýbirtur.

Tapaði félagið 4,8 milljónum evra árið 2021.

Þótt viðsnúningurinn hafi verið mikill hyggst Bláa lónið ekki greiða út arð vegna síðasta árs.

„Áætlanir félagsins gera því ráð fyrir áframhaldandi bata í rekstri félagsins á árinu 2023 sem koma meðal annars fram í auknum tekjum, bættri afkomu og að fjárhagsstaða félagsins verði áfram sterk,“ segir í skýrslu stjórnar í nýbirtum ársreikningi Bláa lónsins.

Rekstrargjöld jukust um 86% á milli ára og námu 85,5 milljónum evra eða um 12,8 milljörðum króna.

- Auglýsing -

Stöðugildi félagsins voru að meðaltali 589 á árinu 2022 samanborið við 396 árið 2021.

Eignir Bláa lónsins voru bókfærðar á 173,6 milljónir evra í árslok 2022, eða sem nemur tæplega 26 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Eigið fé var um 74,3 milljónir evra eða um 11,1 milljarður króna. Eiginfjárhlutfallið var 43%.

Tilkynnt var í nóvember síðastliðnum um að Bláa lónið hefði ákveðið að hefja undirbúning að skráningu á aðalmarkað Kauphallarinnar.

- Auglýsing -

Í tilkynningu sem Bláa lónið sendi frá sér í dag segir Grímur Sæmundsen, forstjóri og stofnandi félagsins, að endanleg ákvörðun um skráningu verði háð framvindu undirbúningsvinnu og eftir því sem markaðsaðstæður leyfa. Að svo stöddu sé verið að horfa til haustsins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -