Þriðjudagur 16. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Donna Cruz: „Fáfræði er engin afsökun“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Borið hefur á því að fólk af asískum uppruna verði fyrir aðkasti og áreiti á Íslandi í kjölfar þess að kórónaveiran greindist fyrst í borginni Wuhan í Kína. Þau Brynjar Steinn Gylfason og Donna Cruz, sem bæði eiga ættir að rekja til Filippseyja, eru meðal þeirra sem tekið hafa málið upp á samfélagsmiðlum og hvatt til þess að fólk hugsi sinn gang.

Málið náði flugi á samfélagsmiðlum eftir að tónlistarmaðurinn Brynjar Barkarson birti á Instagram-síðu sinni mynd af sér með öndunargrímu frammi fyrir afgreiðslumanni af grænlenskum uppruna við kassa í Bónus, nokkuð sem mörgum þótti bera vott um kynþáttafordóma. Meðal þeirra sem deildu færslunni á Twitter og Instagram og gagnrýndu hana var Brynjar Steinn Gylfason sem þekktur er á samfélasmiðlum sem Binni Glee. Í kjölfarið rigndi yfir hann póstum þar sem fólk af asískum uppruna sagði frá reynslu sinni af fordómum vegna umræðu um kórónaveiruna.

Brynjar Steinn Gylfason, sem er þekktur á samfélagsmiðlunum sem Binni Glee, hefur varla tölu á póstum sem hann hefur fengið frá fólki af asískum uppruna sem segist hafa upplifað fordóma á Íslandi vegna kórónaveirunnar.

„Ég ætlaði ekkert að blanda mér í þetta,“ segir Brynjar Steinn. „Ég var alltaf að bíða eftir að honum yrði bent á hvað þetta var óviðeigandi og að hann tæki færsluna niður og bæðist afsökunar, en þegar það gerðist ekki gat ég ekki á mér setið að vekja athygli á þessum fordómum. Þetta er svo langt frá því að vera í lagi.“

„Er svona fólki hleypt inn?“

Viðbrögðin við færslu Brynjars Steins voru gríðarleg og mörg þeirra sem svöruðu honum höfðu sjálf upplifað aukna kynþáttafordóma eftir að kórónaveiran greindist. Meðal þeirra sem tjáði sig var sextán ára stúlka sem var ættleidd frá Kína sem sagðist hafa orðið fyrir kynþáttafordómum og áreiti eins lengi og hún man eftir sér, en aldrei eins og nú síðustu vikurnar.

„Hún sagðist lenda í því hvað eftir annað að fólk bæði hana að koma ekki nálægt sér vegna þess að hún myndi smita það af kórónaveirunni,“ útskýrir Brynjar Steinn. „Sem er auðvitað fáránlegt vegna þess að hún er Íslendingur og hefur búið hér alla sína ævi. Hún segist vera orðin hrædd við að fara út úr húsi og að hún skammist sín fyrir að vera frá Asíu, eftir að nánast allir sem hún hittir tali um að hún geti verið smitberi, ekki bara krakkar á hennar aldri heldur ekkert síður fullorðið fólk. Og hún var alls ekki sú eina sem hafði þessa sögu að segja, það voru ótrúlega margir sem höfðu lent í einhverju álíka eða orðið vitni að því. Ein stúlka sagði mér frá því að hún hefði verið að afgreiða í bakaríi þar sem tveir kínverskir ferðamenn komu inn og fullorðin íslensk kona hefði orðið mjög reið og spurt hvort „svona fólki“ væri virkilega hleypt inn í verslanir þessa dagana.“

„Hún segist vera orðin hrædd við að fara út úr húsi og að hún skammist sín fyrir að vera frá Asíu, eftir að nánast allir sem hún hittir tali um að hún geti verið smitberi.“

Áfall hvað sögurnar eru margar

- Auglýsing -

Brynjar Steinn segist auðvitað hafa vitað að rasismi gegn fólki af asískum uppruna væri algengur á Íslandi, enda oft orðið fyrir honum sjálfur, en það hafi engu að síður verið hálfgert áfall að lesa allar þessar sögur og komast að því að sumir notuðu kórónaveiruna til að fá útrás fyrir fordóma sína.

„Það er eins og fólk haldi að það að veiran hafi upphaflega verið greind í Kína gefi því leyfi til að sýna öllum af asískum uppruna opinberan fjandskap og fyrirlitningu,“ segir Brynjar Steinn. „Ég skil ekki hvernig fólk getur varið svona framkomu fyrir sjálfu sér, fyrir utan hvað þetta er ótrúlega heimskulegt og sýnir mikla fáfræði.“

Brynjar Steinn segist ekki sjálfur hafa orðið skotspónn fordóma fólks vegna kórónaveirunnar, enda hafi hann búið á Akureyri alla sína ævi og fólk þar viti að hann sé ekki frá Kína heldur hálfur Filippseyingur og hálfur Íslendingur, en það sé engu að síður hræðilegt að verða vitni að þessum rasisma. Honum sé því mjög mikið í mun að vekja athygli á þessu ástandi og reyna að fá fólk til að hugsa sinn gang.

- Auglýsing -

„Ég deildi þessu öllu á mínum samfélagsmiðlum til að vekja athygli á þessu,“ útskýrir hann. „Ég er með mjög marga fylgjendur og mig langar til að stuðla að því að fólk fræðist meira um þetta og skilji hvað rasisminn er algengur hér á Íslandi, þótt það sé ekki talað mikið um það. Ég verð að taka fram að ég fékk líka ótrúlega mörg skilaboð frá fólki sem þakkaði mér fyrir að vekja athygli á þessu og sagðist ekki hafa vitað að ástandið væri svona slæmt. Eins og með alla fordóma eiga þessir auðvitað uppruna sinn í fáfræði fólks og því betur sem við drögum þetta fram í dagsljósið því meiri von er um að eitthvað breytist í þessum málum. Fólk reynir svo oft að verja svona rasískar athugasemdir á þeim forsendum að þær séu sagðar í gríni, en þetta er ekkert fyndið og særir þá sem fyrir því verða virkilega djúpt.“

Donna Cruz segir óskaplega mikilvægt að vekja athygli á þessum fordómum, því það sé ekki hægt að stöðva það sem enginn tali um. Mynd / Íris Dögg

Hvers konar afsökunarbeiðni er það?

Donna Cruz, sem hreif þjóðina með leik sínum í kvikmyndinni Agnes Joy, tekur í sama streng og Brynjar Steinn.

„Ég hef ekki lent í þessum fordómum vegna kórónaveirunnar,“ segir hún. „En ég held að það stafi meðal annars af því að ég er ekki feimin við að láta fólk heyra það þegar það segir eitthvað óviðeigandi. En ég hef heyrt frá vinum mínum og fjölskyldu að fólk segi þeim það hreint út að ef það sjái fólk af asískum uppruna taki það stóra U-beygju til að smitast ekki af veirunni og ýmislegt í þeim dúr.“

Donna segir myndina sem Brynjar Barkarson póstaði hafa verið hræðilega og hún tekur ekkert mark á því þegar fólk reynir að verja myndbirtinguna á þeim forsendum að þetta hafi verið grín. Og hún á líka erfitt með að kyngja afsökunarbeiðni hans sem hún segir ekki hafa birst fyrr en mörgum dögum eftir að myndin birtist.

„Ef þú biðst afsökunar á einhverju vegna þess að fólk hefur haft eitthvað á móti því sem þú gerðir, er þá eitthvað að marka það?“ spyr hún. „Ég á erfitt með að taka mark á svoleiðis afsökunarbeiðni. Ég veit auðvitað að kveikjan að þessum fordómum er bara fáfræði en það er engin afsökun, það er mjög auðvelt að verða sér úti um fræðslu og réttar upplýsingar ef fólk hefur áhuga á því.“

Skiptir öllu að vekja fólk til umhugsunar

Spurð hvort hún upplifi kynþáttafordóma sem viðvarandi vandamál á Íslandi segir Donna engan vafa leika á því.

Fjallað er um málið í helgarblaðinu Mannlíf.

„Kynþáttafordómarnir eru alltaf þarna,“ segir hún. „Ég hef fundið fyrir þeim í gegnum tíðina, alveg síðan ég flutti til Íslands fjögurra ára gömul og allir af asískum uppruna sem ég þekki hafa sömu sögu að segja.“

Donna segir óskaplega mikilvægt að vekja athygli á þessum fordómum, því það sé ekki hægt að stöðva það sem enginn tali um.

„Mjög oft þegar svona rasísk ummæli koma fram er það frá fólki sem gerir sér kannski ekki grein fyrir því að það sem það er að segja er óviðeigandi og þá þurfum við að vera dugleg við að benda á að svona segi maður ekki. Ég er alls ekki að segja að fólk sem segir svona hluti sé vont fólk, en það þarf að vekja það til umhugsunar um það hvað það er að segja. Það er aldrei í lagi að nota útlit eða einkenni fólks sem ástæðu til þess að niðurlægja það og þótt fólk sé kannski ekki að reyna að særa viðkomandi þá gerir það það samt. Það verður kannski aldrei hægt að útrýma kynþáttafordómum en það er hægt að minnka þá ef við erum öll vakandi fyrir því að benda hvert öðru á hvað er viðeigandi eða óviðeigandi að segja við annað fólk.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -