Þorgeir nokkur skrifaði færslu í Facebook-hópnum Ég er íbúi í Grafarholti sem vakti reiði hópmeðlima.
„Mig langar að vekja athygli á því að foreldrar brýni fyrir krökkunum sínum sem eiga vespur lágmarkstillitssemi á göngustígum.“ Þannig byrjar færslan. Þorgeir hélt svo áfram. „Lentum í því fjölskyldan að einstaklingur (á grunnskólaaldri) á vespu keyrði á milli tveggja manneskja sem voru í 1/2 metra fjarlægð á fullum hraða og dró með sér fjölskylduhundinn áður en vespan sleit tauminn.“
Segir hann að einstaklingurinn hafi vel tekið eftir þessu en að hann hafi haldið áfram á fullum hraða, fram hjá Krónunni og upp Þúsöldina. „Eftir sátu slasaður einstaklingur og hundur.“ Vonar Þorgeir að þetta sé einstakt tilfelli.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa en skiptist fólk á að setja reiðikall, þumal og grátkall við færsluna og nokkrir tjáðu sig.
Piotr segir að þetta sé því miður ekki einstakt tilfelli og virðist reiður. Jósa spyr hvort það sé í lagi með grey hundinn og Pálmey kemur með annað dæmi. „Lenti í svipuðu í fyrradag en slapp með skrekkinn, náði taumnum og hundinum en viðkomandi brunaði í burtu. Þetta er að verða daglegt brauð á göngustígunum hér í Holtinu og ekki eru fullorðnir hjólreiðamenn skárri.“