Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Ungur hrossabóndi lætur Ingu fá það óþvegið: „Þú ættir að skammast þín fyrir skinhelgina.“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ungur hrossabóndi, Bjarni Sævarsson er með opið bréf á Vísi í dag, til Ingu Sæland, formann Flokks fólksins. Í bréfinu skammar Bjarni hana Ingu fyrir frumvarpið sem hún hefur nú lagt fram á Alþingi en hún vill banna blóðmerabúskap á Íslandi.

„Ég er ungur hrossabóndi, hef ekki verið talinn til efnamanna og verð það trúlega aldrei. Síðastliðin ár hafa ekki verið landbúnaðinum hagfelld, afurðaverð lágt og hefur engan veginn haldið í við verðlagsþróun. Ég keyri ekki um á nýjum Land cruiser heldur klæðist ég gömlum stígvélum og rifinni úlpu við mitt brauðstrit, hef ekki ráð á öðru. Afar lítið rými hefur verið í hinum hefðbundnu búgreinum fyrir ungt fólk, því fór ég þá leið að halda merar til blóðgjafar því það er eina búgreinin þar sem eitthvað pláss hefur verið fyrir nýja aðila. Ég fullyrði að ég og mitt samstarfsfólk göngum ekki á heilsu meranna minna, annars væri þetta ekki og hefði ekki verið stundað í áratugi með góðum árangri. Reynslan lýgur ekki. Þær eru hraustar og því fer fjarri að þær séu einhver villidýr sem mega ekki sjá mann án þess að sturlast eins haldið hefur verið fram af mikilli vanþekkingu.“

Þvínæst talar Bjarni um ást sína á merunum og talar um þær sem djásn í hans augum.

„Mínar merar eru elskar að mér og ég að þeim. Ég lít til þeirra nærri daglega árið um kring og þá koma þær og heilsa upp á mig, ljúfar og rólegar, hvort sem ég er að færa þeim hey á dráttarvél eða kem til þeirra gangandi. Í mínum búskap hef ég keypt að allskonar hryssur, sumar styggar og ótamdar. Þær undantekningalaust spekjast fljótt í mínu stóði og verða ekki minni djásn í mínum augun en þær sem ég hef fengið gæfar.“

Að lokum skammar hann Ingu og segir það skjóta skökku við að hún ætli sér að svipta hann lifibrauðinu, þar sem hún segist bæði vilja útrýma fátækt og að hún sé mikill dýravinur. „Aukin heldur vilt þú neyða mig til að slátra mínum bústofni, merunum sem ég elska, með því að banna þeim að sjá sér farborða. Undarleg dýravernd það.“

Lokaorð Bjarna eru sterk.

- Auglýsing -

„Þar heggur sá er hlífa skyldi kæra Inga. Þú ætlar að setja mig á götuna, rúinn æru og heiðri og skipa merunum mínum í ómerkta gröf. Þú ættir að skammast þín fyrir skinhelgina.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -