Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Uppreisn Friðjóns og kjökur Brynjars

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sjálfstæðisflokkurinn nötrar stafna í milli eftir harða gagnrýni Friðjóns Friðjónssonar, miðstjórnarmanns og trölltryggs Sjálfstæðismanns. Friðjón lýsti því yfir að flokkur hans væri staðnaður undir formennsku Bjarna Benediktssonar. Þetta eru þung orð frá manni sem kemur innan úr kjarna flokksins. Víða má heyra kjökurhljóð flokksbræðranna vegna svikanna. Þeirra á meðal er Brynjar Níelsson alþingismaður, sem þó verður seint kallaður grátgjarn. Flokksbræðurnir mættust í Silfri Egils þar sem Friðjón stóð fast á því að flokkurinn væri staðnaður. Brynjar áminnti hann fyrir að fara opinberlega fram með málið  í stað þess að hvísla því inn á við. Búist er við að Friðjón sé fallinn í ónáð vegna málsins. Skrímsladeild flokksins er þegar komin á stúfana og lætur berast að Friðjón sé á leið í Viðreisn þar sem hann eigi betur heima …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -