Hjálmar Bogi Hafliðason, varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, spyr hvort það sé ekki kominn tími á að takmarka símaeign barna. Hann ræddi þetta á Alþingi fyrr í dag en Viðskiptablaðið tók fyrst eftir því. Hjálmar vill að Alþingi skoði hvort hægt sé að banna farsíma undir fimmtán ára aldri.
Hjálmar bendir á að börnum yngri en 14 ára sé bannað að sjá ákveðnar myndir. Á hinn boginn þá er það sama barn með aðgang að öllum hryllingi mannkynsins í vasanum, eða „internet hlaðborðinu“ líkt og Hjálmar komst að orði í ræðustól.
Hann segir raunar mörg dæmi um að eitthvað sé bannað börnum. Slíkt nýtur stuðnings flestra. Þar má nefna hjónaband, reglur um útivistartíma og áfengiskaup. „Við eigum til að mynda viðmið um orkudrykkjaneyslu barna. En hvers vegna er í lagi að tólf ára barn eignist snjallsíma með aðgangi að internet hlaðborði sem þeim fylgja? Hvað þá með tíu eða níu ára barn? Við eigum fordæmi. Fjórtán ára má barn sjá allar kvikmyndir í kvikmyndahúsum ef þau horfa í fylgd með foreldri eða forráðamanni,“ segir Hjálmar Bogi.