- Auglýsing -
Tónlistarmaðurinn Ingó Veðurguð – Ingólfur Þórarinsson – er orðinn faðir í fyrsta sinn.
Ingó og kærusta hans, Alexöndra Eir Davíðsdóttir eignuðust dreng fyrir þremur dögum síðan.
Ingó og Alexandra opinberaðu samband sitt síðasta sumar; Ingó greindi frá því að von væri á barni þegar meiðyrðamál hans gegn Sindra Þór Sigríðarsyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í vor.
Það hefur gustað um Ingó í langan tíma og því er þessi fæðing litla drengsins án efa stórt og mikið ljós í lífi hans og Alexöndru.
Mannlíf óskar parinu til hamingju.