Miðvikudagur 27. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Veðurspá fyrir gamlársdag

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Á morgun, gamlársdag er útlit fyrir fremur hæga austlæga átt með minniháttar éljum, en áfram léttskýjað sunnan- og vestantil. Vindur fer vaxandi um landið sunnan- og vestanvert um kvöldið og einnig þykknar upp við suðurströndina.“

Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við frosti um allt land.

Dregur úr frosti en búast má við töluverðri vindkælingu sunnan- og vestantil og vissara að klæða sig vel. Fyrir norðan og austan verður vindur mjög hægur og þar mun frostið ekki bíta eins illilega og þar sem vinds gætir,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Austlæg átt, víða 3-10 m/s á morgun, en mun hvassari við S-ströndina seinnipartinn. Bjartviðri víða á landinu, en skýjað með köflum S-til og stöku él. Hlýnar heldur, einkum SV-til.

Spáð er stormi á Austurlandi á nýársdag: „Norðaustanstormur og snjókoma eða skafrenningur á A-verðu landinu, dálítil él NV-lands, en annars úrkomulítið. Frost 0 til 6 stig, en frostlaust syðst.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -