Tónlistarmaðurinn úr GugGus, Birgir Þórarinsson, oftast kallaður Biggi Veira, gefur ekki mikið fyrir stefnu Framsóknarflokksins, og tjáir sig um það á Facebook-síðu sinni:
„Stefna þeirra er meira eða minna stefna Samfylkingarinnar? Það var nokkuð ljóst að kosningaplott framsóknar var umpólun frá fyrri kosningabaráttu,“ segir Biggi og bætir þessu við:
„Í stað þess að finna eitthvað á móti meirihlutanum, var lagt áhersla á að styðja það sem meirihlutinn hefur gert vel en bjóða uppá nýjan borgarstjóra í Einari Þorsteinssyni: þ.e. þetta tal Einars er bara eitthvað blaður, til að gera góðu mál Samfylkingarinnar og annarra í fráfarandi meirihluta að sínum á komandi árum.“
Og Biggi er klár á því hvað væri vænlegt í stöðunni núna í Reykjavík, sem er ansi snúin eftir niðurstöður kosninganna:
„Best væri ef Líf mundi segja sig úr VG og ganga til liðs við sósíalista og fá þannig inn möguleika á SPCJ með Sjönnu sem borgarstjóra. það myndi aðeins slökkva á þessu Framsóknar rugli.“