Þriðjudagur 23. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

VERÐKÖNNUN – Nærri 27 prósenta verðmunur á parameðferðum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í verðkönnuninni að þessu sinni skoðaði Mannlíf verðið á pararáðgjöf hjá níu aðilum sem bjóða upp á slíka meðferð.. Það getur stundum verið nauðsynlegt fyrir hjón/pör að leita sér aðstoðar hjá utanaðkomandi aðila ef vandamál eru í sambandinu sem þarf að reyna að leysa úr. Það er einnig mjög gott að leita annað slagið til slíkra aðila þó að allt sé gott í hjónabandinu/ sambandinu það þurfa ekki endilega að vera vandamál til staðar.

Oft er það því miður þannig að fólk hefur ekki efni á slíkri þjónustu og þá skiptir auðvitað máli að kynna sér  verð. Tekið er fram að á sumum heilsugæslustöðvum og hjá kirkjunni er oft veitt slík meðferð án endurgjalds svo vert er að skoða það fyrst, ef til vill. Að öðrum kosti má  líta í kringum sig meðal annars með verð í huga.

 

Verð fyrir könnunina voru fengin með því að hringja á staðina og fá þau uppgefin. Í töflu hér að neðan er einnig tilgreind menntun þeirra sem þjónustuna veita en það eru yfirleitt sálfræðingar og fjölskyldufræðingar. Þó sinna félagsráðgjafar og prestar einnig slíkri þjónustu. Til eru svo kynlífsráðgjafar sem sérhæfa sig sérstaklega í öllu sem viðkemur kynlífi og geta pör auðvitað leitað til þeirra ef um slíkan vanda er að ræða, þó eru þeir ekki með í þessari könnun. Það skal tekið fram að menntun þeirra sem sinna þjónustunni segir ekkert til um gæði hennar. Sem dæmi eru fjölskyldufræðingar sérhæfðir meðal annars einmitt í slíkum meðferðum. Það eru allir aðilar jafn hæfir til þess að sinna þjónustunni sé litið til menntunar þeirra einungis.

 

Niðurstöður

- Auglýsing -

Hæsta verðið var hjá tveimur aðilum, Heilsuklasanum og hjá Parameðferð – sálfræðiþjónusta. Kostaði tíminn í parameðferð 19.000 krónur hjá þessum aðilum en sálfræðingar sinna þjónustunni á þessum stöðum. Lægsta verðið reyndist vera hjá Parameðferð – Hönd í hönd en þar kostar tíminn í parameðferð 15.000 krónur, þar sinnir fjölskyldufræðingur meðferðinni. Munurinn á milli hæsta og lægsta verðs er því 26,6 prósent.

 

Hér að neðan er tafla með öllum upplýsingum

- Auglýsing -

 

StaðurVerðMeðferðaraðili
Parameðferð-sálfræðiþjónusta19000Sálfræðingur
Parameðferð- Hönd í hönd15000Fjölskyldufræðingur
Sálfræðistofa Reykjavíkur – Elsa17500Sálfræðingur
Sálfræðistofan Höfðabakka – Elín15500Fjölskyldufræðingur
Domus Mentis- Geðheilsustöð18500Fjölskyldufræðingur
Sálfræðistofan Höfðabakka – Björg15500Fjölskyldufræðingur
Sálfræðistofan Höfðabakka – Kristín16500Fjölskyldufræðingur
Sálfræðistofan Höfðabakka –18000Sálfræðingur
Heilsuklasinn19000Sálfræðingur

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -