Þriðjudagur 19. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

VERÐSAMANBURÐUR- Bónus með lægra verð en Krónan í öllum tilfellum – Allt að 33 prósent munur

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Verðsamanburður á milli Bónus og Krónunar á 27 vörutegundum leiddi í ljós að Bónus var með lægra verð í öllum tilfellum. Þó var ekki um umtalsverðan mun að ræða í 12 af 27 tilfellum eða undir einu prósenti. Munurinn lá á milli 0,1 til 33,4 prósent og átta vörur voru með 10 prósent eða hærri mun.

 

Verðsamanburður

Mannlíf skoðaði verðmun á 13 íslenskum og 14 erlendum vörutegundum hjá Bónus og Krónunni. Vörur voru valdar af handahófi. Verð voru fengin í verslunum Bónus og Krónunnar.

 

Niðurstöður

- Auglýsing -

Bónus var alltaf með lægra verðið eða í 27 tilfellum af 27. Munurinn var þó ekki mikill í 12 tilfellum af 27, undir einu prósent. Verðmunurinn lá á milli 0,1 til 33,4 prósent. Átta vörutegundir voru með tíu prósent eða meiri mun, 9,8 til 33,4 prósent.

 

Mesti munurinn

- Auglýsing -

Mestu munaði á erlendum vörum, Pagen kanilsnúðum eða 33,4 prósent og ferskum ananas 24,2 prósent. Íslenskar vörur sem munaði talsvert á verði voru íslenskt smjör 9,8 prósent, HP flatkökur 10,7 prósent, Ísey skyr 7,7 prósent og Kea skyr 7,1 prósent.

 

 

Hér að neðan má sjá upplýsingar um öll verð og muninn á þeim.

 

 

 

VörurBónusKrónanMunur
Íslenskt smjör5435969.8%
Pepsi max 0,5L1491500.7%
Finish töflur 112 stk205920600.0%
Te og kaffi baunir, french Roast9599620,3%
MS Hleðsla 3pk5695720.5%
HP flatkökur14916510.7%
Extra tyggjópoki2192294.6%
Innocent 300ml3593600.3%
MS Matreiðslurjómi3953960.3%
Vínber græn kr/kg8798850.7%
Kíwí kr/kg5955960.2%
Vatnsmelóna kr/kg2952960.3%
Ananas stk29837024.2%
Pagen snúðar29939933.4%
Þ.B forsoðnar kartöflur 1kg5095100.2%
Ísey skyr 170gr1952107.7%
Kea skyr jarðab 200g2262427.1%
Ms laktósafrí mjólk 1L2372474.2%
SFG agúrka1871891.1%
Epli græn kr/kg2952991.4%
Knorr sveppakraftur1891921.6%
OS Höfðingi 150gr51957210.2%
Knorr nautakraftur2092163.3%
Ísey skyr skvísa1791916.7%
Ora maís 432gr2272280.4%
SFG sveppir 250gr3393462.1%
Pepsi max 4x2L7597600.1%

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -