Miðvikudagur 24. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Verkalýðsleiðtoginn Sólveig Anna: “Niður með öll orðasalöt íhaldsins og framreiðslufólk þeirra!”

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Verka­lýðs­foringinn sterki, Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, tjáir sig á Facebook og segir að “Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið 2 milljarða frá okkur skattgreiðendum til að eyða í nammi og Koolaid. Og salat; stærsta orðasalat íslandssögunnar framreitt viðstöðulaust og allsstaðar svoleiðis að við þurfum stöðugt að þylja æðruleysisbænina svo að við ráðumst ekki á saklaus strætóskýli og vinnum tryllt skemmdarverk.”

Hún bætir við að “í morgun kl. 7.54 gladdist ég innilega og djúpt af því að Guðlaugur Þór glápti ekki lengur á mig og laug einhverju random rugli af strætóskýlinu mínu heldur var Lindex farið að auglýsa gallabuxur með afslætti. Ég hef aldrei verið jafn ánægð með að láta mæðulega unga konu reyna að selja mér eitthvað sem mig vantar ekki. Bókstaflega ALLT er betra en Guðlaugur Þór!”

Sólveig Anna vonar að “þetta sé í síðasta skipti sem við þurfum að láta þetta sjálfhverfa fólk með löskuðu siðferðisáttavitana gubba á okkur orðasalati útum alla borg. Í nafni móðurgyðjunnar, hættum að gefa þeim peninginn okkar til að eyða í lyga-áróður. Sýnum smá sjálfsvirðingu! Niður með öll orðasalöt íhaldsins og framreiðslufólk þeirra! Verum sterk; just say NO!”

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -