Fimmtudagur 18. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Vigdís kjörin forseti fyrst kvenna í heiminum: „Nú erum við ævivinir“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Árið 1980 gerðist sá merki heimsviðburður að kona var kosin forseti í lýðræðislegum kosningum. Var það frú Vigdís Finnbogadóttir sem kosin var fyrst kvenna í þetta hlutverk en litlu munaði að hún tapaði baráttunni fyrir Guðlaugi Þorvaldssyni en aðeins munaði 200 atkvæðum.

Dagblaðið Dagblaðið, fjallaði um sigurinn á eftirfarandi máta, morguninn eftir kosningar:

Vigdís Finnbogadóttir varð sigurvegari forsetakosninganna og tekur við embætti sem 4. forseti íslenzka lýðveldisins hinn 1. ágúst nk. Eftir æsispennandi talninganótt varð það
Ijóst um dagmál, að Vigdís yrði sigurvegarinn. Mjög mjótt var á munum með Vigdísi og Guðlaugi Þorvaldssyni lengst af og var munurinn minnstur 94 atkvæði yfir landið allt um fjögurleytið í nótt. En síðan tók Vigdís að síga fram úr og er fyrstu tölur úr Austur-
landskjördæmi birtust voru úrslitin ráðin. Vigdis hlaut flest atkvæði í sex kjördæmum af átta. Hún sigraði í Reykjavik, með 1,3% umfram Guðlaug, í Norðurlandi vestra með 1%
umfram Guðlaug, á Vestfjörðum með 3,6% umfram Guðlaug, á Vesturlandi með hálfu prósenti umfram Guðlaug en mestur varð sigur Vigdisar á Austfjörðum þar sem hún
hlaut 45,5% atkvæða og rúm 12% umfram Guðlaug. Þar innsigluðust úrslitin. Loks sigraði Vigdís á Suðurlandi, þar sem hún hlaut 2,1% umfram Guðlaug. Guðlaugur Þorvaldsson_ bar sigur úr býtum i tveimur kjördæmum; í Reykjaneskjördæmi með 0,1% umfram Vigdísi og á Norðurlandi eystra með 0,9% umfram Vigdísi. Fyrstu tölur í Reykjavík og Reykjanesi bentu til óvænts styrkleika Alberts Guðmundssonar. En er á leið dróst hann aftur úr og baráttan stóð í öllum kjördæmum fyrst og fremst á milli Vigdísar og Guðlaugs.

Heildarúrslitin á landinu öllu urðu þessi:

Vigdis Finnbogadóttir 43.530 33,6%
Guðl. Þorvaldsson 41.624 32,2%
Albert Guðmundsson 25.567 19,8%
Pétur J. Thorsteinsson 18.124 14,0%
Það skildu þvi 1906 atkvæði þau
Vigdísi og Guðlaug. Auðir seðlar og
ógildir á öllu landinu voru 540 eða
0,4%. Kosningaþátttaka var rétt liðlega 90%.

Guðlaugur Þorvaldsson brást við úrslitunum af sannri prúðmennsku og hvatti þjóðina til að sameinast um Vigdísi.

- Auglýsing -

„Þetta fór einsog ég bjóst við. Það varð mjótt á mununum. Ég óska Vigdísi Finnbogadóttur til hamingju og vona að þjóðin sameinist nú að baki henni þegar ótvirætt er orðið að hún hefur náð kjöri,” sagði Guðlaugur Þorvaldsson i samtali við DB um sexleytið i morgun þegar ljóst var orðið hver úrslit kosninganna yrðu. „Á þessari stund er mér efst í huga þakklæti til stuðningsmanna minna um land allt, sem lagt hafa á sig mikið starf, og til mótframbjóðendanna fyrir þeirra hlut,“ sagði Guðlaugur Þorvaldsson í samtali við Dagblaðið.

Umfjöllun Dagblaðsins hélt áfram.

„Þetta á að vera hamingja okkar allra, nú er sumarið byrjað,” sagði Vigdís Finnbogadóttir,
nýkjörinn forseti Íslands, snemma í morgun. Hinn nýi forseti var þá að koma út i undurfallegan sumarmorguninn eftir sjónvarpsviðtal. Nokkur ungmenni fögnuðu Vigdisi og
færðu henni blóm. „Nú fer ég til hennar mömmu minnar og segi við hana: Góðan daginn, mamma mín, nú er ég orðin forseti.” Vigdís heimsótti síðan móður sína, en hélt síðan heim á Aragötu. Þegar þangað kom beið hennar fjöldi fólks og fagnaði nýjum þjóðhöfðingja íslendinga ákaflega. Gleðin var fölskvalaus og lófatakið stóð mínútum saman. Vigdís var umföðmuð og kysst og grétu menn á götu úti og var þar enginn greinarmunur á körlum og konum. Vigdís Finnbogadóttir kom síðan út á svalir húss síns og ávarpaði fagnandi stuðningsmenn sína: „Við eigum ekkert að vopni nema orðið, en við getum mikið sagt með orðum.” „Við elskum þig öll,” hrópaði fólkið. „Og ég elska ykkur öll,” svaraði Vigdís. „Húrra
fyrir Íslandi og ykkur öllum.”

- Auglýsing -

Marga gesti bar að garði og mátti m.a. sjá tvo ráðherra, þá Svavar Gestsson og Hjörleif
Guttormsson. Einnig voru margir vina Vigdísar úr leikhúsinu, auk fjölda annarra. Þegar um hægðist náði blaðamaður DB tali af hinum nýja forseta. Vigdís var klædd ákaflega fallegri ullardragt úr íslenzkri ull. „Þetta er áheitaklæðnaður, sem kona fyrir norðan sendi mér. Ég ætlaði ekki að skarta þessu fyrr en ljóst væri að svona færi,” sagði Vigdis. „Ég vona að hún hafi séð mig í sjónvarpinu.” Á borði Vigdísar lá kort til hennar frá Ástríði dóttur hennar. Það var hátíðlegt, svo sem hæfði tilefninu. Ástríður titlaði móður sína sem vera bar: Til frú Vigdísar. Síðan sagði: „Jeg sagna þin mamma. Jeg fekk nít úr. Þín Ástriður. Hamingju með forsetan.” Og hvernig líður nýjum forseta íslands? „Ég er hreykin. Mér finnst þetta vera einstök framsýni hjá íslendingum að kjósa sér konu til forseta. Ég hef undanfarna viku haft
þá bjargföstu trú, að þetta kjör gæti gert íslandi mikið gagn. Þetta vekur svo mikla athygli á landinu. Aðrar þjóðir fara að átta sig á því, að hér býr þjóð sem hefur svo mikið vinnuþol og svo mikla verkmenningu. Ég lít á þetta sem minn sigur og jafnréttisbaráttunnar. Ég gaf mína persónu heilli þjóð til að vega og meta og það er mikil lífsreynsla. Ég hafði ráð á þvi. Ég dró engan til ábyrgðar nema sjálfa mig. Ég er þannig sett einmitt vegna þess að ég er ógift. Kosningabaráttan var öðru visi en ég bjóst við i upphafi. En ég hefði ekki viljað missa af þessari reynslu fyrir nokkra muni. Ég mun aldrei líta lifið sömu augum og fyrr. Ég átti ekki von á að vinna, en ég vissi að ég yrði ofarlega, að ég myndi ekki bíða afhroð. Mér datt aldrei í hug að ég yrði fyrir níðhöggum. En það sýnir að jafnréttisbaráttan hefur í raun löngu unnizt, en þess sigurs hefur ekki verið neytt. Það hefði aldrei verið vegið svona að mér ef ég hefði ekki verið jafnvíg. Ég fer fljótlega að hitta það fólk sem hefur kosið mig. Ég hef skilið við hundruð manna að undanförnu með þessum orðum: Nú erum við
ævivinir.”

Frú Vigdís var þjóðhöfðingi Íslendinga allt til ársins 1996 og þótti hún komast afar vel frá verki.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -