Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.8 C
Reykjavik

Vilja endurnýja Kjalveg með einkaframkvæmd: „Fátt sem styrkir byggðirnar eins og bættar samgöngur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Átta þingmenn úr röðum Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu er varðar endurnýjun vegarins yfir Kjöl með einkaframkvæmd.

Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.

„Með heilsársvegi yfir Kjöl er mögulegt að stytta til muna leiðina landshorna á milli og auðvelda þannig ferðir á milli Suður- og Norðurlands og opna fyrir möguleika á þróun nýrra ferðamannaleiða,“ segir í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum vegna málsins.

Í greinargerð með þingsályktunartillögunni er gert ráð ráð fyrir að vegurinn yfir Kjöl verði endurnýjaður þannig hægt verði að halda honum opnum stórum hluta ársins; ráðgert er að verkefnið verði unnið sem einkaframkvæmd, og segir í greinargerð að við undirbúning að endurnýjun vegarins sé brýnt að allir fletir málsins verði vel greindir; hvernig best væri að standa að fjármögnun og hvort skynsamlegt sé að líta til fyrirkomulagsins við gerð Hvalfjarðarganga með aðkomu Spalar hf. sem fyrirmyndar fyrir þetta mögulega verkefni.

„Við þekkjum að það er fátt sem styrkir byggðirnar jafn mikið og bættar samgöngur. Það er stórt og mikið mál innan ferðaþjónustunnar að skapa forsendur fyrir betri dreifingu erlendra ferðamanna um allt land. Allt Ísland, allt árið. Mjög stór hluti allra ferðamanna sem sækja Ísland heim leigja sér bílaleigubíl og keyra um á eigin vegum. Ég er fullviss um að uppbygging Kjalvegar er mikið framfaramál sem myndi styrkja byggðirnar bæði norðan og sunnan heiða,“ segir Njáll Trausti.

Í tilkynningunni kemur fram að aðrir flutningsmenn þingsályktunartillögunnar séu Óli Björn Kárason, Birgir Þórarinsson, Haraldur Benediktsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Vilhjálmur Árnason og Guðrún Hafsteinsdóttir.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -