Hinn frábæri og káti piltur, Hallur Helgason, vill sjá fleiri grínista í stjórnmálin; segir reynsluna af borgarstjóratíð Jóns Gnarrs vera gott dæmi um að grínisti geti verið meira en alvöru stjórnmálamaður; hann geti orðið mjög góður.
Gefum Halli orðið.
„Hjá ákveðnum hópi vanvita hefur tíðkast að kalla grínista trúða, í niðrandi samhengi.
Nú er það svo að einn farsælasti borgarstjóri höfuðborgar okkar umliðna áratugi er Jón Gnarr. Hann hafði vit á að játa á sig vankunnáttu á vissum sviðum og leita sér leiðsagnar.“
Bætir við að „Volodymyr Selensky var framan af þekktur grínisti en er að sýna af sér mikla þrautseygju, baráttuvilja og stjórnkænsku, þrátt fyrir hörmulegt ástand. Fleiri grínista til forystu.!“