Þjónustusamningur Ylju neyslurýmis rennur út í næstu viku og er nú unnið að því að koma þjónustunni í fastari skorður.
Á döfinni er að framlengja starfssamning, en mikil hætta er á þjónusturofi þegar núverandi samningur rennur út.
Neyslurýmið var opnað í fyrra og ákveðið var að veita starfsleyfi í ár til að sjá hvernig þetta myndi ganga.

Marín Þórsdóttir er deildarstjóri hjá Rauða krossinum, og segir hún í samtali við ruv.is að verkefnið hafi gengið afar vel.
„Við byrjuðum þetta í bíl og renndum kannski svolítið blint í sjóinn. Við þekkjum hópinn okkar ágætlega og strax frá fyrsta degi hefur verið nýting í rýminu og hefur verið þannig nær alla daga frá því að við opnuðum,“ segir Marín og bætir við:
„Það að finna bílastæði og vindur og annað slíkt hefur áhrif á kyrrðina inni í bílnum. Það getur verið vandasamt að nota í æð þegar bíllinn hreyfist og þá er það ekki hentugt.“
Marín segir augljóst að ef verkefnið eigi að halda áfram þurfi að finna húsnæði til að geta veitt þjónustuna; en til stendur að endurnýja samninginn og halda verkefninu áfram:
„Við erum að leita allra leiða að það verði ekki þjónusturof fyrir þennan hóp.“