Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Vínbúðin sögð selja vafasamt vín: „Óverjandi“

Vínbúðin sögð selja vafasamt vín: „Óverjandi“
Mynd / Unnur Magna

Félagið Ísland-Palest­ína skora á Vín­búð­ina að hætta sölu á víni frá ísra­elsku fram­leið­end­unum Psagot og Clos de Gat. Vínið frá þessum fyr­ir­tækjum er sagt fram­leitt á hernumdu landi. Félagið birtir opið bréf til Vín­búð­ar­inar þar sem kallað er eftir því að hún versli ekki við land­ræn­ingja.

„Vínbúðin býður nú til sölu nokkrar vín­teg­undir sem fyr­ir­tækið segir vera frá Ísrael. Engin þess­ara vín­teg­unda er frá Ísrael, þau eru fram­leidd á Vest­ur­bakk­anum, á hernumdu landi í land­töku­byggðum sem telj­ast ólög­legar sam­kvæmt alþjóða­lögum og sam­þykktum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Vínbúðin aug­lýsir vín frá ísra­elsku fram­leið­end­unum Psagot og Clos de Gat. Psagot er starf­rækt í land­töku­byggð­inni Migron á Vest­ur­bakk­anum, á landi sem stolið er af Palest­ínu­mönnum, nánar til­tekið systr­unum Amal og Keinat Quran, sem fá ekki að stíga fæti á eign sína.Vín­fram­leið­and­inn Clos de Gat, sem er skráður í Ísrael, er með vín­ekrur á stolnu landi á Vest­ur­bakk­anum, innan vopna­hléslín­unnar frá 1949 sem eru við­ur­kennd í alþjóða­sam­þykktum sem fram­tíðar landa­mæri Ísraels og Palest­ínu,“ segir í bréf­inu.

Þar er enn fremur að Ísland sé aðili að samn­ingum sem nái utan um þetta. „Ísra­elsku land­töku­byggð­irnar og her­nám Vest­ur­bakk­ans stríða gegn alþjóða­lögum og sam­þykktum alþjóða­sam­taka sem hafa for­dæmt þær. Aðgerðir Ísraels stríða gegn Fjórða Gen­far­sátt­mála sem bannar flutn­ing almenna borg­ara her­náms­veld­is­ins til búsetu á hernumdu land­svæði og enn­fremur að nýta auð­lindir hernumdra lands­svæða. Alþjóða­dóm­stóll­inn í Haag og Alþjóða­nefnd Rauða kross­ins hafa hafnað full­yrð­ingum Ísraels um að landið hafi ekki til­heyrt full­valda ríki þegar það var her­tekið. Ísland er aðili að þessum samn­ingum auk þess sem Ísland styður s.k. tveggja ríkja lausn sem byggir á alþjóð­legum sam­þykktum um landa­mæri Ísraels og að land­töku­byggð­irnar séu ólög­legar,“ segir í bréf­inu.

Uppruni vín­s­ins á heima­síðu Vín­búð­ar­innar sé í besta falli mis­vísandi. „Samkvæmt úrskurði ESB frá 2019 ber að koma skýrt fram á merki­miðum inn­fluttrar vöru hvert upp­runa­land vör­unnar er. Upp­lýs­ing­arnar á vef­síðu Vín­búð­ar­innar geta í besta falli talist mis­vísandi. Þar er skráð að vínið sé frá Ísrael og frá „Judean hills“, en ekki eins og rétt er; að vínið sé ræktað á Vest­ur­bakk­anum, í ólög­legum land­töku­byggðum á her­teknu landi. Á vef­síðu Vín­búð­ar­innar segir að ÁTVR sé ábyrgt fyr­ir­tæki og vilji vera til fyr­ir­myndar á sviði sam­fé­lags­á­byrgðar. Þetta eru góð mark­mið en það er ekki nóg að hafa vilj­ann – vilj­ann verður að sýna í verki,“ segir í bréf­inu.

Samtökin von­ast til þess að þetta vafa­sama vín verði taf­ar­laust tekið úr sölu. „Í ljósi yfir­lýstrar stefnu íslenskra stjórn­valda, þar sem her­nám­inu hefur verið and­æft og stuðn­ingi lýst við sjálf­stæða Palest­ínu, er með öllu óverj­andi að Vínbúðin, sem er opin­bert fyr­ir­tæki, selji vín land­ræn­ingja úr land­töku­byggðum sem starfa í trássi við alþjóða­lög. Félagið Ísland-Palest­ína skorar á Vín­búð­ina að hætta taf­ar­laust sölu á öllum vínum frá ofan­greindum vín­fram­leið­end­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára