Miðvikudagur 27. mars, 2024
2.8 C
Reykjavik

Vinur minn er dáinn: Myrkrið sem er falið á bakvið brosið – „Síðasta skipti sem ég sá Hafliða“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Það getur verið erfitt að eignast vini, sanna vini. Ég á fullt af vinum og er heppinn að eiga þá að. Vinasamböndin eru af ýmsum toga allt frá því að vera „high five vinur“ og alveg í bestu vinina sem maður treystir fyrir öllu. Einn af þeim bestu hét Hafliði Ottósson.“

Þetta segir Óli Stefán Flóventsson fyrrum knattspyrnukempa sem nú hefur menntað sig sem knattspyrnuþjálfara og stýrt stórum félögum. Óli Stefán fjallar um einn sinn besta vin, Hafliða Óttósson, í áhrifamiklum pistli sem birtur er á vef Mannlífs. Á síðustu mánuðum hafa verið fluttar fréttir af auknum sjálfsvígum og því mikilvægt sem aldrei fyrr að láta í sér heyra.

Óli Stefán og Hafliði komu úr ólíkum áttum Óli Stefán var mikill íþróttamaður en Hafliði galvaskur sjóari.

„Það var samt alltaf þannig að hann sýndi boltanum mikinn áhuga og á sama hátt hafði ég gaman af hans sögum af sjómannslífinu og öllu sem því tengdist. Hafliði var nefnilega duglegur sjómaður, enda af miklum sjómannsættum kominn.“

Óli Stefán bætir við að Hafliði hafi iðulega verið hrókur alls fagnaðar. Styrkur og kraftur Hafliða var gleði og léttleiki. Óli Stefán segir:

„Hann gaf þá gjöf að brosa sem er mjög vanmetið í hinu daglega lífi.“

Það var þann 28. desember 1996 sem Hafliði heimsótti Óla Stefán um kvöldmatarleytið.

- Auglýsing -

„Við áttum spjall sem ég gleymi aldrei. Á þessum tíma sem hann sat hjá mér og spjallaði man ég að ég hugsaði að ég væri afar heppinn að eiga hann sem vin. Þegar að nóg var komið að kjaftagangi, var komið að kveðjustund,“ segir Óli Stefán og bætir við:

„Í anddyrinu tókum við gott faðmlag og ég horfði á eftir honum ganga eftir stéttinni og setjast uppí Galantinn sinn. Í dag sé ég þetta „móment“ í slow motion“.

Ég sé fyrir mér þegar að hann opnaði bílhurðina, leit á mig og brosti til mín sínu fallega brosi, settist inn í bílinn og ók á brott.

Þetta var í síðasta skipti sem ég sá Hafliða Ottósson.

- Auglýsing -

Hafliði var ávallt í því hlutverki að gefa af sér og gleðja aðra. Á sama tíma tókst honum að fela sína innri baráttu og þá miklu vanlíðan sem hann glímdi við. Sökum þess gerði Óli Stefán sér ekki grein fyrir innra stríði vinar síns.

„Ég leita enn þá að merkjum sem hann gæti hafa verið að gefa frá sér í kalli á hjálp. Sá innri djöfull sem hann barðist við hafði betur. Hafliði tók eigið líf árla morguns 29. desember 1996,“ segir Óli Stefán en í dag tekur hann ekki vináttu sem sjálfsögðum hlut.

„Ég er alls ekki feiminn við að opna mig og ræði tilfinningar mjög opinskátt því ég vil að vinir mínir geri það sama við mig. Ég reyni að komast í gegnum bros þeirra ef það skyldi leynist neyðaróp að innan því það er oftar en ekki vel falið,“ segir Óli Stefán og endar á þessum mikilvægu skilaboðum:

„Hugsum vel um hvort annað, því við vitum ekki nema okkar nánustu séu í myrkrinu og þurfi hjálparhönd til að rata inn í ljósið að nýju“.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -