Í fyrradag birtist frétt inni á Vísir.is þar sem fullyrt var að Kolbeinn Sigþórsson væri á förum frá Gautaborg. Sú frétt var hins vegar tekin niður nokkrum mínútum síðar.
Eins og alþjóð veit hafa öll spjót beinst að landsliðsmanninum en hann hefur viðkennt og beðist afsökunar á slæmri hegðun á skemmtistað gagnvart Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur og vinkonu hennar, Jóhönnu Helgu Jensdóttur en þær hafa sakað hann um ofbeldi.
Mannlíf hafði samband við starfsmann Vísis sem var á vakt á sunnudaginn sem tjáði blaðamanni að þeir hafi sett inn fréttina eftir að hafa séð sænska miðla fjalla um málið. Sænsku miðlarnir hafi hins vegar dregið fréttirnar til baka og því hafi þeir ákveðið að gera slíkt hið sama, hún hafi verið „illa ígrunduð.“