Miðvikudagur 22. janúar, 2025
-0.3 C
Reykjavik

Víst héldu Valsmenn veislu þótt illa hafi gengið: Fékk Heimir Guðjónsson ,,koss dauðans?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mikil umræða hefur átt sér stað á samfélagsmiðlum þess efnis að Valsmenn hafi vegna lélegs árangurs karlaliðsins í sumar ekki haldið lokahóf þegar tímabilið var búið.

Talað hefur verið um lélegan móral hjá karlaliði Vals í sumar, sem margir spáðu titlinum. Þótt Valsmenn hafi sent frá sér stuðningsyfirlýsingu við þjálfara liðsins, Heimi Guðjónsson, er ekki víst að allt sé í himnalagi; yfirlýsingar sem þessar frá stjórn eru oftast kallaðar ,,Koss dauðans.“

En mjög oft hefur það gerst að eftir slíkar yfirlýsingar hafi sá sem naut stuðningsins samt verið látinn fara – en varðandi Heimi, þá kemur það væntanlega fljótlega í ljós hvort hann heldur starfinu.

En Þeir Valsmenn hafa nú sent frá sér yfirlýsingu vegna áðurnefndu umræðunnar sem þeim finnst vert að leiðrétta:

„Vegna skrifa um lokahóf knattspyrnudeildar Vals vill knattspyrnudeild árétta nokkur atriði. Í fyrra varð mfl. karla Íslandsmeistarar í fótbolta og fögnuðu því í Fjósinu eins og frægt varð og án aðkomu knattspyrnudeildar.

Um þetta var tíst og allt fór í bál og brand á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum, síminn stoppaði ekki, lögreglan hafði samband og framkvæmdastjóri Vals fékk stöðu sakbornings og félagið í kjölfarið kært fyrir brot á sóttvarnarlögum.

- Auglýsing -

Meistaraflokkur kvk. urðu Íslandsmeistarar í ár og þann 10. september var haldinn fögnuður fyrir leikmenn og þjálfara, ásamt mökum, þar sem boðið var í mat og drykk í Fjósinu.

Stóð sú veisla fram eftir kvöldi og var mjög vel heppnuð.

Síðastliðinn laugardag hittist svo mfl. karla í Fjósinu þar sem boðið var upp á drykki og í kjölfarið fór hópurinn saman út að borða,“ segir í yfirlýsingunni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -