Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Yfirlýsing frá bónda í blóðmeraiðnaði: Lágafell er ekki bær nr. 6 eða 38

Fátt hefur verið rætt meira á Íslandi undan­farið en hryssuníð þau er náðust á faldar mynda­vélar og birtust í heimildar­mynd sem sýnileg er á YouTube. Hafa bændur í blóð­mera­bransanum legið undir ámæli hjá meirihluta þjóðarinnar síðan mynd­bandið birtist. Einn þeirra, bóndinn á Lágafelli í Austur Landeyjum gaf fyrir stundu frá sér yfir­lýsingu um málið. Yfir­lýsinguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Yfir­lýsing, 25. nóvember 2021

Yfir­lýsing vegna frétta af blóðmerum

– Frá lögbýlinu Lágafelli í Austur Landeyjum. Bærinn dreginn að ósekju inn í sorglega frétta­umfjöllun um dýraníð í greininni.

Fyrr í vikunni birtist umfjöllun dýra­verndunar­samtaka um blóðtöku úr folalds­hryssum á íslenskum bónda­bæjum, þar sem dregin var upp sláandi mynd af því sem fullyrt var að væri altíða á þeim bónda­bæjum sem selja blóð úr merum sínum. Óhætt er að taka undir, að þau myndbönd sem sýnd voru í tengslum við umfjöllunina, veki óhug og að spurningar vakni um hvort eins sé farið hjá öðrum bændum sem starfa í greininni.

Á bónda­bænum Lágafelli í Austur Landeyjum hefur verið stunduð ræktun hrossa sem samhliða hafa verið notuð í blóðtöku frá árinu 1985. Núverandi ábúendur bæjarins tóku við búinu árið 2001 og hafa verið með allt að 80 hryssur í blóð­búskap. Í dag eru 48 hryssur í því stóði sem notaðar eru í blóð­gjafir. Tekið skal sérstak­lega fram að Lágafell er hvorki bær nr. 6 eða 38, sem mest af umræddu myndefni kemur frá.

Mikils misskilnings virðist gæta um hvernig framkvæmd blóðtöku er á meirihluta þeirra bæja sem stunda blóð­búskap. Ljóst er að langflestir bændur gæta þess í hvívetna að komið sé fram við hrossin þeirra af umhyggju og virðingu. Á Lágafelli fer blóðtaka þannig fram að blóð er tekið úr hryssum á um 10 vikna tímabili á ári, sem hefst alla jafna í ágúst. Utan þess tímabils ganga hrossin laus á svæði sem telur um 350 hektara. Umsjón er þó vitanlega höfð með hrossunum allt árið um kring svo tryggt sé að ekkert ami að þeim og að þau skorti ekkert. Meðal hryssa á búinu gefur af sér um fimm lítra vikulega og í fimm vikur.

Áður en blóðtaka er svo framkvæmd eru merarnar blóð­mældar af Ísteka/dýra­læknum. Séu blóðgildi og -búskapur í lagi, er blóð dregið úr þeim hryssum sem sýna svörun. Þær sem ekki sýna svörun, eru sendar aftur í sýnatöku sem fer fram viku seinna. Þær sem sýna að hormónið sé til staðar gefa blóð. Merarnar eru stað­deyfðar á stungu­stað af dýralækni áður en blóðtaka hefst. Tryggt er að framkvæmdin sé eins streitu­lítil og kostur er á og hafa ábúendur á Lágafelli búið svo um hnútana að dýrin séu tamin/vanin við blóð­tökuna. Folöld fylgja merum í gegnum þar til gerðar rennur og í blóðtöku, til þess að draga úr álagi á bæði merar og folöld. Í réttinni er búið svo um hnútana að tryggt sé að hrossin geti hvorki valdið sér né öðrum tjóni.

Þegar dýrunum er smalað inn í rétt og rennur er beitt áhöldum á borð við 150 cm. plast­rörum, til þess að beina hrossunum rétta leið. Vissulega er dýrunum stjakað með áhöldunum en dýrin eru aldrei slegin eða vísvitandi meidd með nokkrum öðrum hætti. Rennur og básar, eru hafðir þröngir, til að minnka álag og streitu og svo þær nái ekki að snúa sér og slasa. Básinn er lokaður að framan, og merin kemur í básinn og tveimur rörum komið fyrir fyrir aftan þær svo þær bakki ekki út úr básnum og lendi við það undir eða yfir rör og beislur og slasi sig. Böndin yfir þær eru eins konar axlabönd, þeim til varnar. Ef hryssa prjónar upp, getur hún rifið úr sér nálina. Böndin og annar búnaður er því hugsaður til þess að verja þær fyrir óþarfa slysum og veita öryggi. Á Lágafelli er regla að við hvern bás stendur alltaf aðili sem fylgist með og róar merarnar á meðan á blóðtöku stendur. Dýra­læknir er alltaf á staðnum og hann er tryggir meðferð og öryggi og segir fólki til í réttinni. Árlega fáum við eftirlits­aðila sem fylgjast með holdafari, heilsu og hófum, og högum. Folöldin eru alin upp við það að fylgja mæðrunum í básinn og gegnum rennurnar, spekjast og þekkja umhverfið og mennina og eru yfirleitt tamin í lok tímabils.

Dýra­læknir er alltaf á staðnum og tryggir, meðferð, öryggi og segir fólki til í réttinni. Árlega koma eftirlits­aðilar frá Ísteka og MAST sem fylgjast með holdafari, heilsu, hófum, og högum. Folöldin eru alin upp við það að fylgja mæðrunum í básinn og gegnum rennurnar. Við það spekjast þau og læra að þekkja umhverfið og mennina í lok tímabils.

Ábúendur á Lágafelli treysta sér ekki til að meta aðstæður annarra bænda við blóðtökur, en sannarlega er mynd­bandið er afar ógeðfellt. Rétt er þó að vekja athygli á því, að einfalt er að búa sögu sem á engan vegin við rök að styðjast, með því að klippa saman efni og setja það í búning til að hrella og hræða fólk. Á Lágafelli eins og öllum öðrum bónda­bæjum á Íslandi hafa komið upp atvik þar sem erfitt hefur verið að ráða fram úr, er varða meðferð dýra. Slík atvik þarf hins vegar alltaf að leysa með nærgætni og virðingu fyrir dýrunum. Barsmíðar á dýrum eru algjör­lega ólíðandi og það væri óskandi að mál allra bænda sem brjóta lög um velferð dýra nr. 55/2013 yrðu rannsökuð af MAST. Bæði mál blóðbænda og annarra eftirlits­skyldra aðila.

Óásættanlegt er með öllu að komið sé fram við dýr með þeim hætti, sem sjá mátti í mynd­bandinu. Dýra­velferð skal ávallt höfð í hávegum þegar unnið er með dýr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja