„Í myndbandi sem gengur á samfélagsmiðlum af sorphirðu Íslenska gámafélagsins í Kópavogi sést hvar sótt er í einn bíl pappír, pappi og plast. Réttu verklagi er fylgt við söfnunina,“ segir í yfirlýsingu frá Íslenska gámafélaginu.
„Í mörgum sveitarfélögum er unnið að aðgreiningu á pappír og plasti og á það við um Kópavog líka.
Unnið er að innleiðingu þess kerfis og hluti af því er aðgreining í tunnur. Að auki fer svo fram flokkun hjá Íslenska gámafélaginu.
Segir Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins að „við erum afar stolt af faglegu flokkunar- og endurvinnsluferli okkar. Ef rýnt er í myndbandið sem fór í umferð sést að ekki er verið að sækja almennan úrgang, heldur það efni sem áður fór í græntunnuna, sem víða þekkist.“
Segir einnig í yfirlýsingunni að „gert er ráð fyrir að innleiðingu á nýju flokkunarkerfi í Kópavogi verði lokið innan átta vikna og verður þá sérsöfnun á úrgangsflokkunum fjórum sem undir eru, plastumbúðum, pappír og pappa, matarleifum og blönduðum úrgangi.“