Miðvikudagur 24. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Yfirlýsing frá Vöndu vegna máls Eiðs Smára: „Getum ekki rætt hans persónulegu mál í fjölmiðlum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eftir að landsmönnum varð það ljóst að búið væri að segja Eiði Smára Guðjohnsen upp sem aðstoðarlandsliðsþjálfara karlalandsliðisns í knattspyrnu kom fram sterk krafa um að KSÍ útskýrði hvers vegna Eiði Smára hefði verið sagt upp. Hér eru íslenskar gæsalappir

Nú hefur formaður KSÍ, Vanda Sigurgeirsdóttir sent frá sér yfirlýsingu um málið sem er svohljóðandi:

Líkt og fram hefur komið þá tóku stjórn KSÍ og Eiður Smári Guðjohnsen sameiginlega ákvörðun um starfslok hans sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla.

Í kjölfarið hafa fjölmiðlar leitað svara um málið.

Af sjálfsagðri virðingu við einkalíf Eiðs Smára þá höfum við, ég sem formaður KSÍ, stjórn og starfsfólk KSÍ, farið þá leið að tjá okkur ekki í smáatriðum uVið viljum ekki og getum ekki rætt hans persónulegu mál í fjölmiðlum. Þar þarf hann að stjórna ferðinni sjálfur.

- Auglýsing -

m tildrög starfsloka hans.

Ákvörðun sem þessi er alltaf þungbær, á sér langan aðdraganda og er ekki tekin nema að vel ígrunduðu máli.

Aftur óskum við Eiði velfarnaðar og þökkum honum góð störf.

- Auglýsing -

Stjórn KSÍ hefur þegar rætt og mun ræða áfram hvort ástæða sé til þess að hætta að veita hóflega áfengi að verkefnum loknum.

Arnar Þór Viðarsson.

Nú tekur við vinna við leit að nýjum aðstoðarþjálfara þar sem þjálfari liðsins, Arnar Þór Viðarsson, mun að sjálfsögðu ráða ferðinni. Vonandi gengur sú leit hratt og örugglega fyrir sig og við finnum réttan aðila í starfið við hlið Arnars til að leiða áframhaldandi uppbyggingu á þessu unga og spennandi landsliði.

Kveðja, Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -