Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Yfirlýsing Guðmundar: „Sólveig neitaði að kynna starfslokasamning við fráfarandi skrifstofustjóra“

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir.

Guðmundur Baldursson, stjórnar­maður í Eflingu, segir Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, fráfar­andi formann, hafa haldið lykil­upplýsingum leyndum frá stjórninni til að hylma yfir vanlíðan starfs­fólks á skrif­stofu Eflingar.

Hann segir í yfir­lýsingu alvarlegan trúnaðar­brest hafa orðið innan stjórnarinnar eftir að Sólveig Anna vildi ekki kynna fyrir stjórninni starfsloka­samning við fráfar­andi skrif­stofustjóra í upphafi árs.

Eins og Mannlíf greindi frá seint í gærkvöldi tilkynnti Sólveig Anna að hún hefði sagt af sér formennsku. Í morgun lýsti Viðar Þorsteinsson, framkvæmda­stjóri Eflingar, að hann myndi einnig segja starfi sínu lausu.

Hér má lesa yfir­lýsingu Guðmundar í heild sinni:

Lykil­upplýsingum haldið frá stjórn

Í ljósi afsagnar Sólveigar Önnu Jóns­dóttur, formanns Eflingar, og uppsagnar Viðar Þorsteins­sonar, framkvæmda­stjóra stéttar­félagsins, vil ég koma því á framfæri að Sólveig Anna hefur haldið lykil­upplýsingum leyndum frá stjórninni til að hylma yfir vanlíðan starfs­fólks á skrif­stofu Eflingar.

Alvarlegur trúnaðar­brestur varð innan stjórnarinnar þegar Sólveig Anna neitaði að kynna fyrir stjórninni starfsloka­samning við fráfar­andi skrif­stofustjóra í upphafi ársins. Því var ítrekað borið við að þessar upplýsingar kæmu stjórninni einfald­lega ekki við. Aftur var stjórninni neitað um kynningu á ályktun trúnaðar­manna um stjórnunar­vanda í júní.

Þegar ég gekk á eftir ályktuninni var mér ekki aðeins ítrekað neitað um hana heldur gerð tilraun til að beita mig persónulegri kúgun á grund­velli þess að formaðurinn hefði aðstoðað mína nánustu. Ég lagði fram tillögu um að utan­aðkomandi ráðgjafi væri fenginn til að fara í gegnum starfsemina til að leita lausna og var því alfarið hafnað. Þess í stað var boðið upp á hvítþvott mannauðs­stjóra á stjórnar­fundi um miðjan júlí.

Enginn í stjórninni veitti mér stuðning í þessu máli og enga hjálp var að fá hjá SGS og ASÍ þrátt fyrir að fyrir lægi að stjórnin ætti óskoraðan rétt á öllum lykil­upplýsingum um starfsemi Eflingar. Sólaveig Anna hefur hvorki brugðist við áskorun starfs­manna um betrumbætur né gengist við ábyrgð sinni sem formaður. Þvert á móti hefur hún skellt skuldinni á mig og starfs­menn sína. Botninum náði hún svo þegar hún krafðist þess að starfs­menn veldu á milli þeirra sjálfra og hennar á starfsmanna­fundi síðastliðinn föstudags­morgun. Í kjölfarið sló hún í síðasta sinn á sáttar­hönd starfs­mannanna. Stéttar­félögum ber að vera fyrirmynd í vinnu­veitenda­hlutverki sínu, annað er ekki lýðandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi