Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Yfirlýsing kvennanna í heild sinni: „Sölvi rauk þá upp og hrinti mér í gólfið“

Tvær konur hafa leitað til lögreglu vegna meints ofbeldis af hálfu Sölva Tryggva­sonar. Þetta kemur fram í yfir­lýsingu sem lögmaðurinn Kristrún Elsa Harðar­dóttir, sem send var að beiðni kvennana. Kristrún segir umbjóðendur sína kjósa að koma ekki fram undir nafni.

Í yfir­lýsingunni kemur fram að önnur konan hefur kært Sölva fyrir líkams­árás. Hún segir atvikið hafa átt sér stað á heimili hennar þann 14. mars síðastliðinn. Lögregla kom á vettvang. Farið var með Sölva á lögreglustöð og skýrsla tekin af honum þar.

Þá segir einnig í yfir­lýsingu Kristrúnar að önnur kona til sín í dag í kjölfar fréttaumfjöllunnar síðustu daga.

Sjá einnig: Catalina hótar Sölva – Kallar hann lygara og segist ætla birta viðkvæm gögn: „Ég mun dreifa öllu“

Hér er yfir­lýsing kvennanna í heild sinni:

Undir­rituð getur staðfest það að til mín hafa leitað tvær konur sem lýst hafa ofbeldi af hálfu Sölva Tryggva­sonar fjölmiðla­manns.

Önnur konan hefur kært Sölva fyrir líkams­árás. Hún kveður atvikið hafa átt sér stað á heimili hennar hinn 14. mars sl. Lögregla kom á vettvang. Farið var með Sölva á lögreglustöð og skýrsla tekin af honum þar. Síðar um kvöldið var tekin skýrsla af umbjóðanda mínum á heimili hennar.

Hin konan leitaði til mín fyrst í dag eftir að hafa fylgst með fjölmiðla­umfjöllun síðustu daga. Hún kveðst hafa orðið fyrir kynferðis­broti af hálfu Sölva á heimili hans hinn 22. júní 2020 og kveðst loks nú hafa hugrekki til að kæra brotið til lögreglu. Beiðni um skýrslu­töku til að leggja fram kæru hefur þegar verið send lögreglu. Sú kona kveðst hafa kynnst Sölva á Tinder og hafi sagt honum að hún væri með reikning á Onlyfans. Hann hafi þá boðist til að vera með henni í myndbandi án þess að sæist í andlit hans en hún hafi þá sagt honum að hún ynni eingöngu með einstaklingum sem hún þekkir og treystir.

Í framhaldi kveður hún þau hafa ákveðið að hittast á heimili Sölva til að kynnast og spjalla. Sú heimsókn endaði að hennar sögn með því að hann braut á henni kynferðis­lega.

Umbjóðendur mínir kjósa að koma ekki fram undir nafni þar sem um þjóð­þekktan mann er að ræða og vilja þær ekki beina athygli fjölmiðla að sinni persónu. Þær segja hinsvegar að það sé þeirra samfélags­lega skylda að leiða sann­leikann í ljós.

Meðfylgjandi er yfir­lýsing frá öðrum umbjóðanda mínum vegna málsins sem hún óskaði eftir að ég kæmi á framfæri við fjölmiðla:

„Ég hafði ekki séð fyrir mér að tjá mig um þetta mál í fjöl­miðlum. Mér finnst ég hinsvegar tilneydd til þess að gera það þar sem að Sölvi kom fram í hlaðvarps­þætti sínum í gærkvöld og ræddi um okkar samband og atvik sem átti sér stað hinn 14. mars sl. Þar fór hann með rangt mál og þykir mér nauðsynlegt að leiðrétta það sem þar kom fram. Ég er ekki að stíga fram til þess að ráðast á hann. Það er hinsvegar mikilvægt að sann­leikurinn komi í ljós.

Það er rétt að við Sölvi áttum í ástar­sambandi í rúma fjóra mánuði. Sambandið var litað af andlegu ofbeldi hans í minn garð og dómerandi persónu­leika hans. Hann sýndi mér sífellt meiri yfirgang eftir því sem leið á sambandið. Þá sýndi hann mér einnig yfirgang í kynlífi og spurði mig tvívegis á meðan á því stóð hvort ég vildi að hann nauðgaði mér. Það fyllti mig viðbjóði og óöryggi í samskiptum við hann. Í lok janúar 2021 fórum við saman í bústaðar­ferð sem endaði með því að hann tók brjál­æðiskast og ég varð mjög hrædd. Eftir það töluðum við lítið sem ekkert saman í mánuð.

Í byrjun mars 2021 fórum við að tala saman aftur. Hinn 14. mars sl. kom Sölvi til mín, við fórum í göngutúr og stoppuðum til að ræða málin. Hann fór þá að segja að hann vildi þetta samband ekki lengur. Ég sagði þá að hann ætti ekki að vera í sambandi sem hann vildi ekki og gekk í burtu. Hann brjálaðist þá og öskraði á mig að koma til baka. Þá var fólk á hestbaki sem fór þarna hjá og ætti að hafa heyrt hvað gekk á. Við öskrin og uppnámið varð ég hrædd og hringdi í vinkonu mína og bað hana að sækja mig.

Eftir að vinkona mín kom þá fattaði ég að lyklarnir mínir voru í bílnum hans og ég þurfti að fara til baka og sækja þá. Hann náði þá að sannfæra mig um að fara með honum aftur heim til mín. Hann sótti mat og við borðuðum. Eftir það fór hann aftur að tjá mér að hann vildi þetta samband ekki lengur. Ég sagði það gott og vel. Svo virtist þá sem hann væri ósáttur með hversu lítil viðbrögð mín voru og tjáði ég honum þá að mér þætti hann ekki vera góð manneskja. Hann væri með grímu úti í samfélaginu og að fólk vissi ekki hver hann væri í raun og veru. Ég bað hann þá að fara, yfirgefa heimili mitt en hann neitaði því. Ég sagði honum þá að ég myndi segja öllum hvaða mann hann hefði að geyma.

Sölvi rauk þá upp og hrinti mér í gólfið. Þegar ég stóð upp þá tók hann mig hálstaki með báðum höndum og sagði mér að taka þetta til baka en ég neitaði. Hann sleppti þá takinu og hringdi í lögreglu og tilkynnti að hér væri manneskja að hóta honum að eyði­leggja mannorð hans. Þá kom lögregla á staðinn og ég greindi þeim frá ofbeldinu sem hafði átt sér stað. Farið var með Sölva á lögreglustöð í skýrslu­töku og síðar um kvöldið var tekin skýrsla af mér á heimili mínu.

Ég vil taka fram að ég veit ekki hvaðan sú saga sem nú er í fjöl­miðlum er tilkomin en hún kemur ekki frá mér. Ég er ekki vændis­kona og atvikið sem um ræðir átti sér stað 14. mars sl. en ekki fyrir tveimur vikum. Hvort fleiri atvik hafi átt sér stað með öðrum konum er eitthvað sem Sölvi þarf að svara fyrir en ekki ég.

Að endingu vil ég óska eftir því að fjöl­miðlar birti ekki nafn mitt af tillitsemi við fjöl­skyldu mína.“

Með kveðju,

Kristrún Elsa Harðar­dóttir, lögmaður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim