Fimmtudagur 18. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Fljótlegur og einfaldur hversdagsfiskréttur

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hér erum við í hversdagslegum hugleiðingum með fiskinn enda ekki að ósekju að reglulega heyrist talað um mánudagsýsur og þriðjudagsþorska. Hér er þó enginn miðvikudagsmarhnútur á ferðinni heldur eðalfiskréttur sem auðvelt og fljótlegt er að laga fyrir alla fjölskylduna þegar komið er heim úr vinnu eða skóla.

 

Sítrónufiskur

fyrir 4

1 msk. smjör
700-800 ýsa eða annar fiskur
1 ½ dl rjómi eða matreiðslurjómi
safi úr 1 lítilli sítrónu
2 msk. ferskt fáfnisgras eða kóríander, saxað (má nota 2 tsk. þurrkað)
salt og nýmalaður pipar
1 laukur, sneiddur
1 fenníka, sneidd
2 msk. olía

Hitið ofninn í 180°C. Smyrjið ofnfast fat með smjöri og raðið fiskinum í fatið. Blandið saman rjóma, sítrónusafa og estragoni, hellið blöndunni yfir fiskinn, saltið og stráið vel af pipar yfir. Bakið í ofninum í 20 mín. Steikið lauk og fenníku í olíu á pönnu og berið fram með fiskinum ásamt soðnum kartöflum.

Umsjón / Guðrún Hrund og Sigríður Björk
Myndir / Kristinn Magnússon
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernudóttir

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -