Föstudagur 19. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Gestgjafinn með einfaldar og fljótlegar uppskriftir að vopni í rútínunni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nú er hefðbundna rútínan komin á hjá flestum eftir sumarið. Þá getur tími fyrir eldamennsku verið af skornum skammti og nauðsynlegt að hafa aðgang að góðum og fljótlegum uppskriftum.

Fljótlegir réttir eru í aðalhlutverki í nýjasta Gestgjafanum. Í blaðinu er að finna tíu góðar en ofureinfaldar uppskriftir sem taka 10, 20 og 30 mínútur að elda. Þar á meðal er kremað spínatpasta, kjúklingahamborgari með halloumi-osti og sælkerapylsa með súrkáli og kryddjurtum, svo nokkur dæmi séu tekin.

Í blaðinu er einnig að finna uppskriftir að góðum réttum þar sem allt er eldað saman í einu fati. Það sparar bæði tíma og léttir uppvaskið.

Í þessu nýja blaði gefa þrír einstaklingar lesendum uppskrift að sniðugum klúbbaréttum,  Helena Gunnarsdóttir er ein þeirra en hún deilir með okkur uppskrift að dásamlegum og djúsí bollakökum.

Bollakökur – fullkominn eftirréttur í saumaklúbbinn. Mynd / Hallur Karlsson

Í blaðinu er einnig að finna uppskriftir að sultum með tvisti, það er nefnilega alltaf gaman að breyta til og gera tilraunir.

Grænmetisþáttur, góðgæti í krukku og vínfróðleikur er einnig meðal þess sem má finna í nýja blaðinu. Þetta og miklu meira.

- Auglýsing -
Mynd á forsíðu / Hallur Karlsson

Tryggðu þér áskrift að Gestgjafanum í vefverslun

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -