SONO Matseljur verða með „pop up“ veitingastað á Götumarkaðinum næstu tvær helgar.
Sigurlaug Knudsen og Hildigunnur Einarsdóttir, konurnar á bak við SONO matseljur, sérhæfa sig í listrænni grænmetis- og veganmatseld. Þær munu bjóða upp á grænmetis- og vegan smárétti þar sem straumar frá Mið-Austurlöndum mæta íslenskri náttúru. Sigurlaug og Hildigunnur vinna mikið með jurtir úr sveitinni sem þær tína, verka og rækta sjálfar.
SONO Matseljur verða í kjallara Götumarkaðarins, Klapparstíg 28-30, næstu tvær helgar. Inngangur við Hjartatorg.
Opnunartími Götumarkaðarins er eftifarandi:
Mið: 17.00-21.00
Fim: 17.00-21.00
Fös: 17.00-22.00
Lau: 17.00-22.00
Sun: 16.00-20.00