Miðvikudagur 24. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Þarftu að breyta mælieiningum í uppskriftinni?

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í sumum uppskriftum eru notaðar aðrar mælieiningar en þú átt að venjast og því getur verið gagnlegt að hafa lista til hliðsjónar sem sýnir magn í mismunandi mælieiningum. Hér eru nokkrir góðir punktar.

 

1 bolli smjör eða sykur = 8 únsur = 16 msk. = u.þ.b. 250 g
1 bolli hveiti = u.þ.b. 125 g
1 bolli flórsykur = 5 únsur = u.þ.b. 150 g
1 dl = 100 ml = tæplega 7 msk.
1 msk. = 15 ml
1 tsk. = 5 ml

VOG
1 pund (lb) = 454 g = 16 únsur (oz)
1 únsa (oz) = 28,35 g

AMERÍSKAR MÆLIEININGAR
1 bolli = 2,4 dl
1 pint, vökvi = 4,7 dl
1 pint, þurrefni = 5,5 dl

ENSKAR MÆLIEININGAR
1 bolli = 2,5 dl

OFNHITI
Það er hægt að reikna út ofnhita með eftirfarandi formúlum en hér er einnig tafla sem auðveldara er að fara eftir. Athugið að ofnar eru misjafnir og nauðsynlegt er að læra á hitann í hverjum ofni fyrir sig. Þegar eldað eða bakað er í ofni með blæstri er ráðlegt að lækka hitann um 15-20°C miðað við uppgefinn hita í venjulegum ofni.

- Auglýsing -

AÐ BREYTA FAHRENHEIT Í CELCÍUS
Dragið 32 frá uppgefnu hitastigi á Fahrenheit, margfaldið þá tölu með 5 og deilið í með 9.
AÐ BREYTA CELCÍUS Í FAHRENHEIT
Margfaldið uppgefið hitastig á Celcíus með 9, deilið í þá tölu með 5 og bætið 32 við.

Tafla sem sýnir muninn á celcíus-, fahrenheit- og gasofnum.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -